Það kom í hlut Skákfélags Akureyrar að halda uppi heiðri íslensku sveitanna í fjórðu umferð á EM Taflfélaga í Albaníu. Akueyringar lögðu írska sveit að velli en Víkingar lutu í dúk gegn svissnesku liði í opnum flokki og TG tapaði naumlega gegn albanskri sveit í kvennaflokki.
Víkingaklúbburinn var efstur íslensku sveitanna eftir þrjár umferðir og mættu ágætlega þéttu svissesku liði með þrjá stórmeistara í sínu liði. Þrjú jafntefli náðust hjá Víkingum og 1,5-4,5 tap.

Jóhann, Björn og Páll gerðu allir jafnefli. Anstæðingur Páls, Ognjen Cvitan, á eina skemmtilegustu sóknarskák í kóngsindverskri vörn frá upphafi. Skákir Víkinga voru ekki í beinni og því tilvalið að kíkja á þessa skemmtilegu skák!
Akureyringar unnu baráttu- og seiglusigur á írsku sveitinni Gonzaga. Hvítu mennirnir voru nýttir vel og 3 vinningar komu í hús með þeim.

Skak.is hafa borist tvær af sigurskákum Akureyringa. Rúnar hafði hvítt á efsta borði og tefldi solid enskan leik, ekkert 1.a3 sull! Írinn leyfði Rúnari meira og minna að hlaða að vild í sókn á kóngsvæng og Rúnar afgreiddi hann svo með snaggaralegri taktík í lokin.
Andri var síðastur að klára og náði í seiglusigur. Andri vann mann í endataflinu og stóð til sigurs en missti sig í lokin og var skákin orðin fræðilegt jafntefli, hrókur og h-peð gegn hrók. Írinn klikkaði þá á fræðunum.
Carl átti að sjálfsögðu að leika hér 65…Hd6 eða 65…Hf1 með hugmyndinni að leika Hf6 næst. Svartur á að stilla hróknum upp á sjöttu reitaröð, hin svokallaða Vancura vörn sem menn eiga að þekkja! Stúdera endatöflin krakkar!
Í fimmtu umferðinni mæta Víkingar Chania Chess Academy frá Grikklandi. Akureyringar fá De Sprenger Echternach frá Luxemburgh.
Kvennaflokkur
TG mætti aftur albanskri sveit eins og í fyrstu umferð. Þessi öllu viðráðanlegri, engir fyrrverandi heimsmeistarar í þessari sveit! TG átti í fullu tré við albönsku sveitina. Jóhanna vann á fyrsta borði og Gulla gerði jafntefli á þriðja borði en Hallgerður og Hildur töpuðu sínum skákum. Tap með minnsta mun niðurstaðan.

TG fær UCD, írska sveit, á morgun. Stelpurnar eiga klárlega séns í þá viðureign!
Íslensku liðin á EM Taflfélaga í ár eru þrjú en í fyrra voru heil fjögur lið í Austurríki í mjög skemmtilegu og eftirminnilegu móti! Mótið í ár fer fram í Durres í Albaníu. Íslensku liðin eru Víkingaklúbburinn og Skákfélag Akureyar sem tefla í opnum flokki og Taflfélag Garðabæjar sem teflir í kvennaflokki. Fyrir utan íslensku liðin má benda á að þeir Margeir Pétursson og Óskar Bjarnason tefla með klúbb frá Lúxemborg.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results (opinn flokkur) | Chess-Results (kvennaflokkur)
- Beinar útsendingar Chess24 (Opinn flokkur)
- Beinar útsendingar Chess24 (Kvennaflokkur)
- Beinar útsendingar lichess (Opinn flokkur)
- Beinar útsendingar lichess (Kvennaflokkur)v















