Íslensku liðin fóru langt með að topp frábæra fimmtu umferð í umferð dagsins, þeirri sjöttu. Hæst bar frábær sigur Víkingaklúbbsins á sterkri sveit frá Svíþjóð. Akueyringar lutu í dúk með lægsta mun gegn mun stigahærri sveit og kvennasveit TG náði jafntefli við enska sveit.
Sigur Víkinga var vaskur! Svíarnir voru stigahærri á öllum borðum nema á síðasta borði.

Á efsta borði vann Jóhann með svörtu. Skak.is hefur ekki borist skákin en samkvæmt öðrum liðsmönnum var skákin „masterpiece“. Jóhann setti tóninn og Bragi fylgdi eftir með góður sigri á öðru borði gegn Milton Pantzar. Bragi hafði alltaf aðeins heilbrigðari og virkari stöðu og vann mjög stílhreina „pósaskák“
Davíð vann lykilsigur á neðsta borði sem var eina borðið þar sem Víkingar voru stigahærri. Davíð náði að spóla sig í gegn á kóngsvægnum og endaði með nettri fléttu.
Páll vann góðan vinnusigur á fimmta borði gegn Birni Ahlander. Tapani og Björn Þorfinnsson lutu í dúk að þessu sinni en góður 4-2 sigur hjá Víkingum.
Andstæðingar Víknga í lokaumferðinni eru SK Javes Modra, sveit frá Slóvakíu sem eru sterkari á pappírnum gamla og góða.

Skákfélag Akureyrar var grátlega nærri því að ná frábærum úrslitum aðra umferðina í röð. Þeir lutu í dúk gegn sveit frá Frakklandi sem voru mun stigahærri á öllum borðum nema því síðasta þar sem menn stóðu jafnfætis, allvega stigalega. Stigin tefldu að mestu á efstu þremur borðunum en Akureyringar náðu að hala vel inn á neðri borðunum. Aðra umferðina í röð komu strákarnir á vizkualdrinum. Hér er skák Haraldar:
Næst á dagskrá hjá Akureyringum er Partizani, albönsk sveit heimamanna.
Skak.is kann liðsmönnum sem senda sínar skákir bestu þakkir fyrir, það gefur fréttunum meira vægi og lit. Ljóst er þó að halda þarf smá kennslu í meðferð .pgn skráa sem á ekki að vera flókið fyrir jafn sterka menn. Ef menn eru t.d. með skjáskot af skákinni úr Chessbase þá er skákin þegar slegin inn og hægt að senda skránna. Skak.is er samt öll af vilja gerð og þessi skák var slegin inn fyrir dygga og góða lesendur!

Magnus Carlsen var loks stoppaður og Richard Rapport náði jafntefli gegn honum. Offersipl gerði einnig jafntefli í viðureigninni og eru í efsta sæti ásamt Superchess fyrir lokaumferðina en hafa betur á oddastigum eins og er.

Kvennaflokkur
TG mætti ensku sveitinni „she plays to win“. TG stigalægri á öllum borðum en náðu í glæsilegt jafntefli í viðureigninni.

Guðlaug vann mikilvægan sigur, Hallgerður gerði jafntefli við enska landsliðskonu og Hildur Björg náði jafntefli við stelpu með 1800 stig, frábær úrslit! Hildur er eini stigalausi keppandinn af 121 í kvennaflokki og ekki dónalegt að ráða úrslitum í viðureigninni!
Næst á dagskrá hjá TG er HSC Helsinki Street Chess, finnsk sveit.
Íslensku liðin á EM Taflfélaga í ár eru þrjú en í fyrra voru heil fjögur lið í Austurríki í mjög skemmtilegu og eftirminnilegu móti! Mótið í ár fer fram í Durres í Albaníu. Íslensku liðin eru Víkingaklúbburinn og Skákfélag Akureyar sem tefla í opnum flokki og Taflfélag Garðabæjar sem teflir í kvennaflokki. Fyrir utan íslensku liðin má benda á að þeir Margeir Pétursson og Óskar Bjarnason tefla með klúbb frá Lúxemborg.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results (opinn flokkur) | Chess-Results (kvennaflokkur)
- Beinar útsendingar Chess24 (Opinn flokkur)
- Beinar útsendingar Chess24 (Kvennaflokkur)
- Beinar útsendingar lichess (Opinn flokkur)
- Beinar útsendingar lichess (Kvennaflokkur)v
















