Birkir Hallmundarson hefur farið vel af stað í flokki U10 á HM í Egyptalandi. Hann gerði jafnetefli í dag og hefur 3,5 vinning. Josef tapaði sinni skák í U12 flokknum.
HM ungmenna í flokkum U12, U10 og U8 fer fram þessa dagana í Egyptalandi. Ísland á tvo keppendur á mótinu. Josef Omarsson teflir í U12 flokknum og Birkir Hallmundarson í U10. Josef hafði 1,5 vinning eftir 4 skákir en hafði mætt tveimur af fjórum stigahæstu keppendunum! Birkir hafði 3 vinninga af 4.
Birkir mætti rúmenskan andstæðing, Iustin-Nicolas Cazacu (1683). Skákin endaði með jafntefli og 3,5 vinningur í hús sem skilar Birki í 15. sæti þegar mótið er að verða hálfnað. Í flokki Birkis eru 115 keppendur og er Birkir númer 34 í stigaröðinni.
Í 5. umferð í U12 mætti Josef strák frá Marokkó, Malek Bensidi (1421). Byrjunin og miðtaflið gengu vel, Josef með fína stöðu +2 í tölvum en lenti í tímahraki og lék af sér. Tapið þýðir 1,5 vinningur af 5.
Í sjöttu umferð fær Birkir ungverskan andstæðing, Alek Szakolczai (1629) en Josef mætir Egypta, Osama Omar Ahmed (1200).
Alls verða tefldar 11 umferðir í báðum flokkum en nú er enginn frídagur á mótinu sökum frestunar á fyrstu umferðinni.
Flokkur Jósefs á Chess-Results U12
Flokkur Birkis á Chess-results U10

















