Hannes Hlífar Stefánsson (2529) tapaði mikilvægri skák í 10. og jafnfram næstsíðustu umferð Heimsmeistaramóts 50 ára og eldri á Ítalíu. Hannes lék skák sinni á grátlegan hátt niður gegn Atalik og eru allar titilvonir Hannesar því úr sögunni.
Hannes stýrði hvítu mönnunum gegn Tyrkjanum Suat Atalik (2427) sem þó teflir undir fána Serbíu. Atalik var fyrsti stórmeistari Tyrkja og lengi vel sá eini þar til skáksprengja varð þar í landi á þessari öld.
Atalik tefldi Berlínarvörn og ætlaði greinilega að halda fengnum hlut. Hannes tefldi afbrigði sem felur í sér peðsfórn en hvítur fær mjög góðar stöðulegar bætur. Stöðutýpur sem eiga að henta Hannesi vel. Hvítreitabiskups svarts á erfitt um vik að taka þátt í skákinni.
Hannes tefldi miðtaflið skínandi vel og var kominn með betra tafl skv. tölvuforritum.
Hér hefði 30.a4 haldið stöðuyfirburðum hvíts. Svartur er tilneyddur til að taka á c4 30…bxc4 31.Dxc4 og endataflið í kjölfarið er þægilegra á hvítt þó erfitt sé að finna plan til að klára dæmið. Þess í stað drap Hannes á b5 með 30.cxb5 og svartur fékk mótspil.
Hér fórnaði Atalik skiptamun 33…Hxe3 34.fxe3 De4+ hér hefði skákin átt að enda með jafntefli með þráskák 35.Kf2 Df5+ 36.Ke2 Dc2+ o.s.frv. Þessí stað lék Hannes 35.Kh2?! sem sleppur en eftir 35…Be5 kom 36.Kh3?? sem er tapleikur. Grátlegt tap þar sem jafnteflið var eiginlega í hendi og þá hefði sviðsmyndin í lokaumferðinni verið allt önnur.
Suat Atalik stendur því ansi vel, er einn efstur með 8 vinninga af 10 mögulegum. Michael Adams og Michele Godena unnu sínar skákir og eru hálfum vinningi á eftir. Hannes er svo í skiptu fjórða sæti.

Atalik fær hvítt á Godena sem gæti komið frá hlið og stolið titlinum með sigri. Adams stendur líklegast vel á stigum ef hann vinnur sína skák og vonast eftir hagstæðum úrslitum á efsta borði. Hannes mætir Maxim Dlugy (2520) í lokaumferðinni. Dlugy er mjög sterkur skákmaður en kannski frægastur fyrir að flækjastóumbeðinn í stóra Hans Niemann málið á sínum tíma.
- Mótið á chess-results
- Beinar útsendingar á lichess
- Beint á Chess24















