Í gær fór fram skemmtiegt, spennandi og glæsilegt Íslandsmót ungmenna (u8-u16). Mótið fór fram í nýju og glæsilegu íþróttahúsi í Garðabæ, Miðgarði. Heimkaup voru aðal styrktaraðilar mótsins.

Keppt var í fimm aldursflokkum og bæði í stráka og stelpuflokkum. Alls tóku 116 keppendur þátt í mótinu sem telst afar góð þátttaka.

Afar góð verðlaun voruí boði. Allir Íslandsmeistararnir fengu frí þátttökugjöld á Reykjavíkurskákmótið 2024 í Hörpu og Heimkaup gaf öllum Íslandsmeisturum glaðning en þeir fengu í verðlaun Pöbbkviss spilið. Gréta María Grétarsdóttir var fulltrúi Heimakaupa í verðlaunaafhendingu eins og sjá má á myndum hér að neðan.

Eins og áður sagði var keppt í fimm flokkum og veitt verðlaun í stráka og stelpuflokkum. Tefldar voru sjö umferðir í öllum flokkum en tímamörkin voru mismunandi.

8 ára og yngri (f. 2015 og síðar)

Umhugsunartími í þessum flokki var: 7 + 3 mínútur. Tveir skákmenn hafa elóstig í þessum flokki og það voru Pétur Úlfar Ernisson (1134) og Dagur Sverrisson (1172). Það kom því lítð á óvart að baráttan um titilinn var á milli þeirra. Fór svo að TR-ingurinn Pétur Úlfar kom í mark með 7 vinninga af 7 mögulegum, vann iinnbyrðis skákina við Dag en Dagur vann allar aðrar skákir og endaði í öðru sæti með 6 vinninga. Nokkrir skákmenn komu jafnir í mark með 5 vinninga en hlutskarpastur á stigum varð Yahia Sulaman Nawaz sem hlaut bronsið.

Verðlaunahafar í U8

Hjá stelpum U8 var Miroslava Skibina Íslandsmeistari með 4 vinninga en á eftir henni komu Ólöf Höskuldsdóttir og Marey Kjartansdóttir með 3 vinninga.

Verðlaunahafar U8 stúlkna

U8 á Chess-Results

9-10 ára (f. 2013 og 2014)

Umhugsunartími í þessum flokki var líka  7 + 3 mínútur. Birkir Hallmundarson (1719) sýndi mikla yfirburði í þessum flokki eins og kannski við mátti búast. Birkir tefldi á dögunum á Heimsmeistaramóti í þessum aldursflokki þar sem hann endaði í skiptu 5. sæti, stórkostlegur árangur! Það kom því eiginlega engum á óvart að Birkis skildi enda með fullt hús, 7 vinninga af 7 mögulegum.

„Stigamennirnir“ röðuðu sér í þrjú efstu sætin. Haukir Vidis Leósson (1144)  fékk 6 vinninga og Tristan Fannar Jónsson (1318) endaði í þriðja sæti með langbestu oddastig af þeim sem fengu 5 vinninga.

Vinningshafar í U10

Hjá stelpunum var Elsa Margrét Aðalgeirsdóttir Íslandsmeistari en hún endaði með 4 vinninga. Þær Halldóra Jónsdóttir og Logitha Krishnakumar enduðu svo báðar með 3 vinninga, Halldóra ofar á oddastigum.

Vinningahafar í stúlknaflokki U10

U10 flokkurinn á Chess-Results

11–12 ára (f. 2011 og 2012)

Í þessum flokki var umhugsunartíminn aðeins rýmri eða 10 + 2. Segja má að þetta hafi verið mest spennandi flokkurinn. Leikar fóru þannig að þrír stigahæstu keppendur mótsins enduðu allir með 6 vinninga af 7 mögulegum. Þetta voru Josef Omarsson, Sigurður Páll Guðnýjarson og Örvar Hólm Brynjarsson. Josef lagði Örvar sem lagði Sigurð sem lagði Josef.

Aukakeppni þurfti til og þar náði Örvar að láta félaga sína lúta í dúk og vann þá báða og tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn. Skemmtilegur aldursflokkur þar sem við eigum marga efnilega skákmenn!

Verðlaunahafar í U12

Í stúlknaflokki varð Emilía Embla Berglindardóttir Íslandsmeistari með 5 vinninga. Sigrún Tara Sigurðardóttir endaði í öðru sæti með 4 vinninga og svo Tara Líf Ingadóttir í þriðja sæti með sama vinningfjölda.

U12 flokkurinn á Chess-Results

13–14 ára (f. 2009 og 2010)

Umhugsunartímanum í þessum flokki var 10 + 5. Hér var á ferðinni spennandi og skemmtilegur flokkur með marga keppendur á svipuðu reyki stigalega. Það sagði allavega pappírinn en Matthías Björgvin Kjartansson var alveg sama um pappírinn og skildi alla eftir í rykinu og hreinsaði mótið með 7 vinninga af 7 mögulegum. Spennan var mikil í baráttu um næstu sæti en heilir fjórir skákmenn voru jafnir í öðru sæti með 5 vinninga. Mikael Bjarki Heiðarsson var með bestu oddastigin og svo kom Markús Orri Jóhannsson.

Verðlaunahafar í U14

Guðrún Fanney Briem varð Íslandsmeistari í stúlknaflokki með 5 vinninga. Þórhildur Helgadóttir kom næst með 3,5 vinning.

U14 á Chess-Results

15–16 ára (f. 2007 og 2008)

Umhugsunartímanum hér var 10 + 5 eins og í U14. Fyrirfram mátti búast við þremur skákmönnum í sérflokki hér og það reyndist raunin. Adam, Ingvar Wu og Gunnar Erik eru bæði stigahæstir og með mestu keppnisreynsluna í þessum flokki. Fór svo að þeir enduðu í þremur efstu sætunum en það var Adam sem var í besta forminu og endaði með 6,5 vinning.

Ingvar endaði í öðru sæti og Gunnar Erik í því þriðja.

Verðlaunahafar í U16

Katrín María Jónsdóttir varð Íslandsmeistari í stúlknaflokki með 3,5 vinning, sjónarmun á undan Iðunni sem fékk 3 vinninga.

U16 á Chess-Results

Skákstjórar voru Páll Sigurðsson, Sóley Lind Pálsdóttir, Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, Stefán Steingrímur, Auðbergur Magnússon, Gunnar Björnsson, Lenka Ptácníková og Björn Ívar Karlsson.

Nokkrar myndir frá skemmtilegum degi

Birkir Karl frá CAD og Heimkaupum og Gunnar Björnsson forseti SÍ
Menn þungt hugsi í mikilvægum skákum
Björn Ívar, einn af ómissandi meðlimum íslenskrar skákhreyfingar!
Einbeitingin algjör!
1.e4 kóngspeðið, „Best by test“ sagði Bobby Fischer
Örvar tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri gegn Sigurði Páli.
- Auglýsing -