Mynd: Ellen Frederica Nielsen

EM landsliða fer fram í Budva í Svartfjalllandi 11-20. nóvember. Ísland sendir lið í opnum flokki og kvennaflokki. Fram að móti verða liðsmenn kynntir til leiks hver á fætur og öðrum Í dag kynnum við til leiks Lenku Ptácníkovú, sem teflir á öðru borði í kvennaliðinu.

EM-fararnir

Nafn?

Lenka Ptácníková

Borð?

2

Hver kenndi þér að tefla og hvað varstu gamall/gömul?

Pabbi, var um 5 ára

Uppáhaldsskákmaður?

Eru margir, á Íslandi t.d. Friðrik Ólafsson, en fullt af öðru flottu fólki til…

Hvernig er þínum undirbúningi háttað fyrir EM landsliða?

Það var fært mun meira á netið en í gamla daga. Chess.com, chessable, aimchess, chessbase, mjög flott námskeið frá European Chess Academy og öðru hvoru margt annað…

Hluti af hvaða landi var Svartfjallaland áður en það hét bara Svartfjallaland? (bannað að nota Google!).

Án google væri ég að giska á Júgóslavíu….en mig grunar  að það þarf ekki vera alveg rétt og heitið öðru nafni á millitíðinni.

Hversu oft hefur þú farið á EM landsliða?

Hmm, man ekki. Næstum því alltaf þegar tækifæri hefur boðist.

Hvaða lönd eiga landamæri að Svartfjallandlandi (Google bannað!!) – Vísbending: Landið á landamæri að fimm löndum.

Já, já, ég er á vísu barbari á þessu sviði. Væri að giska á þessi lönd frá Júgóslavíu fyrverandi…allavega eitthvað af þeim, en hvað í viðbót? Örruglega eitthvað.

Hver verður fyrsti áskorandi Ding Liren?

Hver veit…

Hvað heitir núverandi heimsmeistari kvenna (Google bannað!)

Hver á muna utanbókan þessi kínversku nöfn? ….já, já, ég veit, maður átti að vita það….en því miður.

Hver er þín skrautlegasta sigurskák?

Þessi spurning kemur oft og skrautlegastum skákum fjölgar ekki á hverjum ári. Svo breytti ég spurningunni í skemmtilega skák nýlega. Það var á vísu skák á móti Bjössa frá Deildakeppni í haust. Fult af mistökum báðum megin, en jafnvel fult af skemmtilegu taktík inni báðum megin og jafnvel því sem gerðist ekki en gæti/ eða átti gerst.

Hver eru þín markmið á mótinu?

Að ná WGM áfanga væri geggjað. Gæti gerst á góðum degi. Í undibúningi gekk eitthvað vonum framan, en annað ekki svo vel, en allt á leiðinni upp og það gleður mig.

Áfram?

Ísland!

 

- Auglýsing -