Evrópumóti landsliða í skák lauk síðastliðinn mánudag, ritstjórn og skríbentar Skak.is hafa verið á faraldsfæti síðan þá en hér kemur loks umfjöllun um lokaumferðina og mótið! Óhætt er að segja að af nógu hafi verið að taka, fyrirsagnirnar gjörsamlega skrifuðu sig sjálfar og þær voru svo sannarlega í fleirtölu!
Opinn flokkur

Íslenska liðið í opna flokknum mætti sveit Tyrkja. Enn einu sinni tefldi sveitin upp fyrir sig, í sjöunda skiptið á mótinu og enn náðust góð úrslit. Segja má að nota megi frasann „Tyrkjarán“ um þessa viðureign en hér það öfugt, úrslitum var rænt af Tyrkjunum!
Í þessari viðureign sýndi íslenska liðið sláandi baráttuþrek og náði ekki bara í ótrúlegt baráttujafntefli heldur reyndist íslenska liðið örlagavaldur þegar kom að því að krýna nýja Evrópumeistara!
Return of the King

Hjörvar Steinn Grétarsson hefur undanfarin ár verið stigahæsti skákmaður okkar. Segja má að hann hafi teflt sig í form á mótinu og var farinn að líkjast „gamla góða Hjörvari“ í lokaumferðunum. Hann gerði jafntefli við Mustafa Yilmaz í lokaumferðinni og þó það hafi ekki verið besta skák Hjörvars á mótinu sýndi hann mikinn styrk að halda jafnteflinu.
Hjörvar lenti í smá basli eftir byrjunina sem sást best á því að hann taldi sig þurfa að leika Ke2 snemma. Hvíta staðan var þó í lagi en síðar lenti hvítur í basli með drottninguna og Yilmaz með svart endaði á að vinna peð.
Tyrkinn komst í hróksendatafl peði yfir en það var of klassískt til að Hjörvar myndi lenda í vandræðum. Svartur hafði frípeð á a-línunni sem dugði ekki til þar sem svartur náði ekki að virkja kóng sinn. Góð vörn hjá Hjörvari og var gaman að fylgast með hans góðu kostum í lokaumferðunum.

Hilmir hafði svart á fjórða borði og var næstur að klára. Hilmir hafði svart og sýndi ábyrgðarfulla liðataflmennsku. Þetta var meðvituð og samþykkt ákvörðun sem Hilmir tók seinni part móts að tefla „meira solid“.
Í skákinni varð slavnesk vörn fyrir valinu, vel þekkt afbrigði. Hilmir lenti aldrei í vandræðum og var ef eitthvað er sá eini í íslenska liðinu sem hefði getað teflt til vinnings í lokin ef á þyrfti að halda. Jafntefli var þó rökrétt niðurstaða.
Hjörvar var á kafla með tapað í sinni skák en hjá Vigni á öðru borði var staðan í lagi eiginlega alla skákina þar til í hróksendataflinu. Vignir tefldi megnið af skákinni feykilega vel gegn einni af vonarstjörnum Tyrkja.
Vahal Sanap með hvítu náði þó með mikilli seiglu að búa til mikil vandamál fyrir Vigni í hróksendatafli þrátt fyrir að ná ekki að verða peði yfir fyrr en undir lokin. Vignir veit í hvaða vörn hann vildi fara en á leiðinni hefði hann getað lent í vandræðum.
Vignir lék hér 46…Hf3?? sem hefur rökrétta hugmynd bak við sig og eftir 47.Kxd5?? stefndi Vignir á að beita hinni svökölluðu Vancura vörn, einstaklega mikilvæg varnaraðferð. Sanal missti hinsvegar af 47.Hb5! sem vinnur eins og Nalimov töflureiknar staðfesta. Lykillinn er að hrókurinn festir ekki á a-línunni eins og hann gerði í skákinni eftir 47…Hf4! eygði Vignir varnarmöguleika. Sanal missti af tveimur erfiðum færum en eftir að hvíta peðið var komið á a6 var komið fræðilegt jafntefli á borðið sem Vignir þekkti og hélt.
Fékk (og hélt) hrók gegn hrók og riddara tvo daga í röð!
Hafi Tyrkirnir fengið góð færi í skákunum gegn Hjörvari og Vigni þá er óhætt að segja að þeir hafi fengið DAUÐAFÆRI í skákinni gegn Guðmundi Kjartanssyni. Andstæðingur Guðmundar var Cemil Can Ali Marandi. Sá tyrkneski er ágætis stórmeistari en kannski ekki jafn sterkur og yngri ár hans gáfu til kynna. Ali Marandi er nefnilega eini skákmaðurinn í sögunni sem hefur orðið Evrópumeistari í U8, U10, U12, U14, U16 og U18 ára flokkum! Þetta er magnaður árangur sem líklegast verður ekki leikinn eftir!
Guðmundur með hvítu hafði lengi vel þægilegra tafl en það snerist í miðtaflinu þegar sá tyrkneski gaf riddara sinn fyrir fjögur peð hvíts. Peð svarts voru stórhættuleg og svartur stóð betur.

Í enn einni langri skákinni sýndi Guðmundur stórmeistarastyrkleika sinni í vörninni og náði að rétta úr kútnum. Allt þar til margfaldi evrópumeistarinn náði að vekja upp riddara.
67…f1=R+ og svartur fékk aftur mjög vænlegt tafl…en aftur fann Guðmundur varnir. Hann náði að gefa riddara sinn fyrir annað peð svarts og vinna svo hitt. Viti menn, Guðmundur þurfti svo að verja hrók gegn hrók og riddara annan daginn og í röð og aftur í yfir 120 leiki! Guðmundur tefldi því vel á fjórða hundrað leikja á þremur dögum!
Þessi vörn Guðmundar reyndist á endanum heldur betur afdrifarík, komum að því hér að neðan.
Fyrir það fyrsta tryggði jafntefli Guðmundar gott jafntefli gegn Tyrkjum. Eitt stig fékkst fyrir það og íslenska liðið endaði því með 9 stig sem skilaði 24. sæti, nokkuð fyrir ofan styrkleikasætið sem var númer 29. Íslenska liðið vann fjórar viðureignir, gerði eitt jafntefli og tapað fjórum. Flestar viðureignir gegn mun sterkari liðum á pappír eða sjö talsins. Tvær viðureignir má segja að hafi verið skyldusigrar og þeir voru teknir.

Sigurvegarar í opnum flokki urðu Serbar. Þetta er í fyrsta skipti sem þeir verða Evrópumeistarar og nutu þeir góðs af fínum liðsstyrk í þeim Predke og Sarana sem eru vissulega sterkir stórmeistarar en Serbarnir voru þó aðeins númer 8 í styrkleikaröð og sigurinn því mjög óvæntur. Serbarnir unnu stórsigur 4-0 á Íslandi í fyrstu umferð og því kom sér mjög vel fyrir þá þegar Guðmundur náði jafntefli í lokaumferðinni. Þau úrslit gerðu það að verkum að Serbar höfðu einu stigi betri oddastig en Þjóðverjarnir og nældu því í titilinn að þessu sinni!

Þjóðverjarnir voru lengi vel líklegir og gerðu sitt með ungstirnið Vincent Keymer í broddi fylkingar.

Þjóðverjarnir gerðu sitt í lokaumferðinni og unnu 2,5-1,5. Á tímabili leit út fyrir að það myndi duga. Serbar höfðu unnið tvær skákir en þá tapaði Predke og Indjic hafði verið í nauðvörn alla skákina. Í lokin virtist hvítur eiga þráskák en missti þráðinn og Indjic náði að lokum að vinna skákina, sem á endanum tryggði Evrópumeistaratitli.
Spennandi skák!
Magnus Carlsen tefldi ekki í lokaumferðinni og viðurkenndi að honum langði í borðaverðlaunin sem hann hafði aldrei áður unnið.

Kvennaflokkur

Lokaumferðin í kvennaflokki gekk ekki vel og enduðum við á að tapa illa, 0-4 og það í fyrsta skiptið á mótinu.
Olga fékk verra tafl í miðtaflinu og má í raun rekja það að mörgu leiti til 4.dxe5 í byrjuninni sem er líklegast strax strategískt lélegur. Atalik hafði alltaf þægilegra tafl og náði að nýta svörtu reitina til vinnings smátt og smátt. Atalik góð á mótinu, tapaði ekki skák.
Andstæðingur Lenku tefldi mjög vel, hún hélt vel á rýminu sem hún vann í byrjuninni og hleyptu Lenku aldrei almennilega inn í skákina. Sú tyrkneska fórnaði svo peði fyrir frábæra staðsetningu svartreitabiskups síns og braust í gegn.
Jóhanna var lengi vel í baráttuskák sem var í jafnvægi en í miðtaflinu reyndist kóngsstaða hvíts of veik og réði það í raun úrslitum. Svartur fórnaði skiptamun en vann hann svo til baka með peðavöxtum.
Hallgerður lenti í smá vandræðum með „lebensraum“ í sinni skák og náði ekki alveg að losa um stöðuna tímanlega. Sú tyrkneska tefldi af miklum krafti og vann góðan sigur.
Þrátt fyrir 0-4 tap má liðið mjög vel við una í kvennaflokki. Í hús komu 7 stig sem er það mesta sem liðið hefur náð á Evrópumóti landsliða. Liðið hóf leik í 27. sæti í styrkleikaröð og endaði í 26. sæti. Tilkoma Olgu styrkir liðið heldur betur og þó hún hefði viljað gera betur á styrkist liðið einfaldlega mjög mikið við það að allir farið niður um eitt borð. Það verður gaman í næstu verkefnum þegar Olga verður komin betur af stað en hún tefldi ekki í fjölmörg ár áður en hún kom til landsins.
Baráttan í kvennaflokki var æsispennandi eins og í opna flokknum. Búlgaría vann sigur í fyrsta skipti. Búlgörum var boðin þátttaka sem gestir þar sem skáksamband þeirra hefur verið í molum og utan ECU í einhver ár en Evrópumeistaratitilinn engu að síður þeirra!

Tæpt var það í lokin hjá Búlgörum. Þeir máttu ekki tapa sinni viðureign en jafntefli hefði líklega dugað (hefðum farið í oddastig). Í stöðunni 1,5-1,5 stóðu Georgíubúar betur á þriðja borði en Gergana Peycheva fór örugglega langleiðina í að verða þjóðhetja með því að snúa erfiðri stöðu (líklegast tapað á kafla) yfir í vinning og tryggði Búlgörum gullið.

Gunnar Björnsson sem einn af varaformönnum ECU afhenti borðaverðlaun í kvennaflokki.

Heimferðin
Meirihluti hópsins fór til Íslands að loknu móti. Ekki gafst mikill tími til hvíldar. Eftir lokahóf var tími í smá hvíld en svo var vaknað 5 um nóttina og heimferðin hófst. Flogið var í öfuga átt til að byrja með, flug til Istanbul ásamt yfir 100 skákmönnum hvaðanæva að. Allt gott og blessað en í Istanbul hófust ævintýrin.
Liðsmenn fengu sér flestir í gogginn á risastórum flugvelli í Istanbul þegar skilaboð fóru að berast. Við höfðum fengið „boarding pass“ í tvö flug frá Turkish airlines. Hið fyrra að baki en næsta flug átti að senda okkur til Kaupmannahafnar. Allt í einu bárust boð um að flugi okkar hefði verið breytt. Nú átti að halda til Amsterdam tveimur tímum síðar og þaðan til Íslands. Ástæðan fyrir breytingunni flug Icelandair frá Kaupmannahöfn um kvöldið sem var aflýst.
Óhætt er að segja að hér hafi orðið uppi fótur og fit. Upphófst æsileg atburðarás með lítinn tíma á klukkunni, alvöru tímahrak! Íslendingar tóku til við að reyna að finna hvern annan en vegna stærðar vallarins reyndist það erfitt. Eftir barning hafðist það að lokum og haldið í „nauðvörn“ í bás Turkish Airlines á svæðinu. Breytingin var þó ekki þeirra heldur í gegnum Icelandair og því var hringt í þá…en á miklum hlaupum enda var verið að hleypa inn í vélina til Kaupmannahafnar og við ekki klár á í hvora vélina við ættum að fara. T.am. var farangur tékkaður inn alla leið og fleiri flækjustig. Til að bæta gráu ofan á svart voru einhverjir á leið í hlið til Amsterdam en að lokum tókst að fá alla á réttum tíma í hliðið til Köben og eftir símtal við skrifstofur Icelandair reyndist það réttur leikur í stöðunni. Í öllum látunum voru þó elstu meðlimir hópsins pollrólegir…enda ekkert inni í tækninni og gátu voru því lítið inn í óðagotinu og stressinu sem var í gangi. Kannski er nútímatækni meira til ama en góðs eftir allt saman?
Niðurstaðan varð að lokum ein aukagistinótt í Kaupmannahöfn þar sem liðsmenn sváfu einstaklega vel, flestir í 10+ klukkutíma enda dauðþreyttir eftir erfitt ferðalag. Heimkoman því ánægjuleg í dag.
Fínn árangur hjá báðum liðum og mótshaldarar fá hrós enda voru aðstæður mjög góðar, keppnisaðstaða, gisting og matur ásamt utanumhaldi var með því besta sem verið hefur á þessum mótum undanfarin ár.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results (opinn flokkur)
- Chess-Results (kvennaflokkur)
- Skákir Chess24 (opinn flokkur)
- Skákir Chess24(kvennaflokkur)


















