Tíundu umferð á HM ungmenna í skák í Montesilvano á Ítalíu lauk áðan. Lokaumferðin fer fram eldsnemma á morgun og fréttaritarar/þjálfarar því uppteknir við undirbúning krakkana. Hér koma úrslit í 10. umferðinni hjá íslensku keppendunum.

Opinn flokkur U18

FM Aleksandr Domalchuk-Jonasson Sasha var einn íslensku keppendanna í beinni útsendingu í umferð dagsins. Okkar maður hafði hvítt gegn Ungverja með yfir 2400 elóstig. Sá ungverski kom betur út úr byrjuninni og hafði peð með í farteskinu. Aleksandr var því lengst af í baráttu um að fá nægjanlegar bætur og komast inn í skákina. Aleksandr náði peðinu til baka en svartur fékk rosalegan riddara á miðborðinu og tvö samstæð frípeð.

Í endataflinu fann okkar maður hinsvegar mótspil tímanlega og virtist vera að ná jafnteflinu….partýið var hinsvegar rétt að byrja og eftir afleik varð Aleksandr aftur að berjast fyrir tilverurétti sínum í þessari skák. Svartur hafði drottningu fyrir hrók en með einhverri ótrúlegri blöndu af seiglu, heppni og útstjónarsemi náði Aleksandr í ótrúlegt jafntefli!

Benedikt Briem gerði jafntefli við sinn andstæðing en nafni hans Benedikt Þórisson vann sigur. Loks tapaði Þorsteinn Jakob F Þorsteinsson í sinni skák.

Opinn flokkur U16

Ingvar Wu Skarphéðinsson vann sína skák en Adam Omarsson varð að lúta í dúk.

Stúlnkaflokkur U16

Iðunn Helgadóttir tapaði sinni skák. Byrjunin virtist ganga þokkalega og Iðunn gerði tilraun til að hanga á umframpeði en eftir nokkra passífa leiki varð hún að gefa mann þegar drottning hennar var innilokuð. Baráttan var erfið eftir það og tap staðreynd.

Opinn flokkur U14

EMM-in fjögur í U14 flokknum áttu heil yfir góðan dag. Mikael Bjarki Heiðarsson vann sinn andstæðing frá Úganda, Matthías Björgvin Kjartansson gerði jafntefli við Spánverja en þeir nafnar Markús Orri Jóhannsson og Markús Orri Óskarsson unnu báðir sína andstæðinga.

Stúlnkaflokkur U14

Guðrún Fanney Briem lagði andstæðing sinn frá kínverku Taipei. Guðrún fékk yfirburðartafl eftir byrjunina og innsiglaði sigurinn snemma með flottri taktík.

14.Hxd7! og svartur er í stórkostlegum vandræðum. 14…Kxd7 er svarað með 15.Re5+

Eftirleikurinn var bara handavinna og Guðrún gerði engin mistök.

Pörun 11. umferðar

Lokaumferðin snemma á morgun eins og áður sagði. Aleksandr fær aftur hvítt gegn tæplega 2400 stiga Svía. Sigur þar gæfi góða lokaniðurstöðu fyrir Aleksandr. Mikael Bjarki fær erfiða pörun í sínum flokki, CM með 2138. Guðrún Fanney hefur 5,5 vinning og gæti klárað gott mót með sigri í lokaumferiðnni.

Opinn U18
Opinn U16
Stúlkur U16
Opinn U14
Stúlkur U14
chess.com
chess24

Opinn flokkur U18 á chess-results
Opinn flokkur U16 á chess-results
Stúlknaflokkur U16 á chess-results
Opinn flokkur U14 á chess-results
Stúlknaflokkur U14 á chess-results

Heimasíða mótsins

 

12 Íslendingar taka þátt og eru þeir í eftirfarandi fimm flokkum:

Opinn flokkur U18
FM Aleksandr Domalchuk-Jonasson
Benedikt Briem
Benedikt Þórisson
Þorsteinn Jakob F Þorsteinsson

Opinn flokkur U16
Ingvar Wu Skarphéðinsson
Adam Omarsson

Stúlnkaflokkur U16
Iðunn Helgadóttir

Opinn flokkur U14
Mikael Bjarki Heiðarsson
Matthías Björgvin Kjartansson
Markús Orri Jóhannsson
Markús Orri Óskarsson

Stúlnkaflokkur U14
Guðrún Fanney Briem

Fararstjórar og þjálfarar í ferðinni eru þeir FT Björn Ívar Karlsson og Gauti Páll Jónsson.

- Auglýsing -