Björn Hólm að tafli.

Tvíburabræðurnir Bárður Örn Birkisson (2254) og Björn Hólm Birkisson (2124) hafa fylgst að í litum og úrslitum á sterku opnu móti á Spáni, Elllobregat Open.

Í þriðju umferðinni höfðu þeir báðir svart en náðu báðir að vinna sigur. Bárður hafði svart á Nikolay Tregubenko (2138) og vann sigur og á sama tíma vann Björn Hólm með svörtu gegn FM Ethan Saya (2242).

Góðir sigrar hjá þeim bræðrum sem eru meira og minna á pari eftir þrjár umferðir. Í fjórðu umferðinni fá þeir báðir hvítt. Bárður fær hvítt á WGM Agrawal Vantika (2421) en Björn Hólm fær hvítt á CM Martin Rocamura Horcajuelo (2281).

Mótið er nokkuð fjölmennt en alls taka 210 skákmenn þátt á mótinu.  Bárður er númer 153 í styrkleikaröðinni en Björn númer 203. Mótið því augljóslega mjög sterkt með fjölda stórmeistara, þeirra stigahæstur Vladimir Fedoseev (2675). Stórmeistarar á mótinu alls 41 og titilhafarnir gríðarlega margir.

- Auglýsing -