Frá Jólahraðskákmóti SA. Mynd: Ásgrímur Örn Hallgrímsson

Hið árlega jólahraðskákmót Skákfélags Akureyrar var haldið í gær, 27. desember við glæsilegar aðstæður á því fallega veitingahúsi LYST í Lystigarðinum. Alls mættu 18 keppendur til leiks og fór mótið allt fram í sönnum jólaanda þótt hart væri barist. Kynslóðirnar létu sig ekki heldur vanta og skildu rúm sjötíu ár að elsta og yngsta keppandann.

Eins og á öðrum hraðskákmótum nú í haust fékk Hörgsveitungurinn Símon Þórhallsson flesta vinninga, eða átta í níu skákum.  Jafnt var í toppbaráttunni lengi framanaf og það var ekki fyrr en í lokaumferðunum sem sigur Símonar fór að blasa við. Hann bætir nú þessum titli við sigur í startmótinu og hausthraðskákmótinu.

Lokastaðan á Chess-Results

1 FM Thorhallsson Simon 2137 8
2 FM Sigurpalsson Runar 2210 7
3 Karlsson Mikael Johann 2024 6
4 IM Karason Askell O 2015
5 Olafsson Smari 1847
6 Bjorgvinsson Andri Freyr 2113
7 CM Halldorsson Halldor 2176 5
8 Oskarsson Markus Orri 1399 5
9 Kristinardottir Elsa Maria 1921
10 Eiriksson Sigurdur 1809
11 Hedinsson Godi 1413
12 Arnalds Stefan 1786 4
13 Vilhjalmsson Hilmir 1207 4
14 Jonsson Stefan G 1677 4
15 Theodoropoulos Dimitri 0
16 Steingrimsson Karl Egill 1677
17 Asgrimsson Valur Darri 1329 1
18 Theodoropoulos Iraklis Hrafn 0 0
- Auglýsing -