Sex skákmenn eru efstir og jafnir að loknum fyrri keppnisdegi á Heimsmeistaramótinu í hraðskák sem fram fer í Samarkand í Úzbekistan. Einn þeirra er Magnus Carlsen sem freistar þess að verja tvennuna og taka titilinn bæði í at- og hraðskák annað árið í röð. Umræðan að loknum fyrsta degi snerist þó að mestu um skrípaleikinn sem fram fór í skák Rússana Ian Nepomniachtchi og Daniil Dubov í 11. umferð.

Skákin tefldist svona:

Augljóst að þeir gera í raun grín og tala saman fyrir og meðan skákin er í gangi

Niðurstaðan varð sú að dæmt var tap á báða!

Menn voru harðorðir á Twitter og margir vildu harðari refsingu, jafnvel að þeim skildi vísað úr mótinu!

Athyglisvert atvik varð í skák Artemiev og Sjugirov. Hvorugur tók eftir ólöglegum leik þar sem kóngurinn á e6 var í dauðanum.

Eftstu menn eftir 12 umferðir hafa 9 vinninga og eru: Vladislav Artemiev, Magnus Carlsen, Maxime Vachier-Lagrave, Nihal Sarin, Arjun Erigaisi og Alexander Riazantsev. Fjöldi skákmann kemur hálfum vinningi á eftir, þar á meðan Nepo og Dubov þrátt fyrir að hafa misst hálfan vinning fyrir skrípalætin.

Carlsen gæti mögulega sofið illa eftir að hafa misst af auðveldum peðsvinningi gegn Nepo.

Carlsen á hér einfaldlega 14…Bxc5 eins og auðvelt er að sjá þegar maður veit að eitthvað er í stöðunni.

Viðbrögð Carlsen voru nokkuð kostuleg…

Kvennaflokkur

Í kvennaflokki er Valentina Gunina í algjörum sérflokki, hún hefur 8,5 vinning úr umferðunum 9 sem tefldar hafa verið í kvennaflokki. Hennar helstu keppinautar hafa 7 vinninga.

Á morgun lýkur svo hraðskákinni og næsta víst að baráttan verður graníthörð!

- Auglýsing -