Hannes að tafli. Mynd: Heimasíða Cerme mótsins 2022.

Hannes Hlífar Stefánsson (2496) rétti úr kútnum í 3. umferð í lokuðum GM flokki í Marianske Lazne í Tékklandi. Hannes hafði hálfan vinning fyrir umferðina en vann góðan sigur með svörtu mönnunum.

Hannes mætti alþjóðlega meistaranum Fabian Benziger (2414) frá Sviss. Hannes stýrði svörtu mönnunum og því dýrmætur sigur hér á ferð. Segja má að Svisslendingurinn hafi teflt upp í hendurnar á Hannesi og færði honum strategískt miðtafl þar sem hæfileikar Hannesar njóta sín hvað best. Tækni Hannesar minnti um margt á taflmennsku Jose Raul Capablanca og líkindi strategíu Hannesar við fræga skák Capablanca var falleg!

Líkindin með peðastöðu Hannesar og liðsafla á borði var sláandi lík frægri skák Marshall gegn Capablanca. Þar nýtti Capablanca sér peðameirihluta á drottningarvæng, ekki ólíkt og Hannes gerði. Skoðið skák Hannesar og svo skýrngar Alex Colovic og þá jafnvel skákina aftur…og lærið!

Tvöföld umferð bíður á morgun, þriðjudag. Hannes fær þá tvo FIDE meistara. Í morgunumferðinni fær hann svart á FM Jakub Kusa (2350) frá Tékklandi en svo hvítt á FM Yamac Samani (2380) frá Tyrklandi.

- Auglýsing -