Hannes Hlífar Stefánsson tapaði í 2. umferð í lokuðum GM flokki í Marianske Lazne í Tékklandi. Hannes mætti ungum Slóvaka, Filip Haring (2432).

Hannes hafði hvítt og beitti andstæðingur hans Caro-kann vörn. Í miðtaflinu virtist Slóvakinn ná að koma böndum á sóknarfæri Hannesar á drottningarvæng og færi hans á kóngsvæng vritust og reyndust hættulegri.

Hannes fær svart á annan ungan alþjóðlegan meistara, Fabian Baenziger (2414) frá Sviss. Tvöföld umferð bíður síðan á þriðjudaginn.

- Auglýsing -