Alireza Firouzja fer með himinskautum þessa dagana og er nú með 14,5 vinning af 15 síðan hann ákvað að gera atlögu að og náði sæti á Áskorendamótinu. Hann hefur hafið leika í Sjávarvíkinni með því að vinna sínar tvær fyrstu skákir og er einn keppenda með fullt hús.
Alireza mætti samlanda sínum Parham Maghsoodloo frá Íran. Alireza teflir reyndar undir fána Frakka en hann og Parham voru hluti af gríðarlega efnilegu landsliði Írana sem var undir stjórn Ivan Sokolov á Ólympíumótinu í Baku 2016.
Parham bauð upp á Berlínarmúrinn en Alireza bauð upp á glæsilega kraftataflmennsku og fórnaði peði í byrjuninni og strax öðru fyrir mikla pressu á stöðu Parham. Pressan skilaði því að Alireza vann drottningu og stuttu síðar kom sigurinn í hús.
Ein af vonarstjörnum Indverja, Dommaraju Gukesh, mætti fyrrverandi vonarstjörnu Kínverja, Wei Yi. Gukesh hafði svart en hann gerði jafntefli við Abdusattorov í skemmtilegri skák í fyrstu umferð sem við gerðum ekki mikið grein fyrir hér á Skak.is. Daniel King bætir hér úr því!
Í umferð dagsins virtist Wei Yi missa fótana í miðtaflinu og taktískar aðgerðir hans virtust ekki virka. Staðan var þó mjög flókin en Gukesh virtist sjá lengra og betur í þetta skiptið. Hess fór aðeins yfir vendipunktinn.
The computer indicates a winning advantage for Gukesh after his opponent starts faltering in time trouble!
Hess breaks down what happened ????. #TataSteelChess pic.twitter.com/lTnn8DdGrS
— chess24.com (@chess24com) January 14, 2024
Síðasta vinningsskák umferðarnnar var í uppgjöri Hollendinganna ungu van Foreest og Warmerdam. Ekki góð byrjun hjá fyrrverandi sigurvegaranum van Foreest en hann vann mótið árið 2021. Hann hefur nú tapað báðum skákum sínum með hvítu mönnunum í fyrstu umferðunum!
Jafntefli urðu í viðureignum Giri-Vidit, Abdusattorov-Pragga, Ding Liren-Donchenko og í viðureign Nepo og Ju Wenjun….þó illa gengi að bjóða jafntefilð í lokin!
Both Nepo and Ju smile awkwardly as neither player seems to want to offer the draw! In the end, they shake hands still smiling.#TataSteelChess pic.twitter.com/DSOCnSpojG
— chess24.com (@chess24com) January 14, 2024
Alireza leiðir því mótið með 2 vinninga af 2 en næstir koma Nepi, Gukesh og Giri með 1,5 vinning.
Loks er hér kveðja frá Carlsen sem væntanlega hyggur á þátttöku að ári!
A regular is missing in the Masters this year. However, he did have something to say to the players of this year #TataSteelChess Tournament. pic.twitter.com/eJWB7x694D
— Tata Steel Chess (@tatasteelchess) January 14, 2024
Þriðja umferð fer fram á morgun.


















