Mikið var um óvænt úrslit í þriðju umferð Skákþings Reykjavíkur sem fram fór í dag. Sex stigahæstu skákmenn mótsins voru með fullt hús eftir tvær umferð en aðeins einn þeir náði að vinna í þriðju umferðinni, Lenka Ptacnikova. Gauti Páll Jónsson náði svo að fylgja Lenku eftir með góðum sigri á stigahæsta keppandanum, Hilmi Frey Heimissyni með svörtu!

Gauti Páll er einn af fáum kyndilberum Benkö-bragðsins sem eftir eru á Íslandi. Gauti hefur beitt Benkö bragði af og til og einnig mætti tína til þá Jón Viktor Gunnarsson og Þorvarð Fannar Ólafsson. Benkö bragðið hefur átt eilítið undir högg að sækja en líkegast á það ekki rétt á sér og Benkö er orðin byrjun sem margir vanmeta.

Gauti fórnaði drottningu í miðtaflinu sem líklegast var rétt ákvörðun. 19…Bxc3 og fékk svartur fína stjórn á stöðunni.

Gauti kláraði svo dæmið með skemmtilegum „fréttablaðsleik“ 41…Hf2! og landsliðsmaðurinn lagði niður vopn.

Guðni Stefán Pétursson er traustur skákmaður. Hann náði að standast frumvkæðið sem Dagur Ragnarsson náði með svörtu í byrjuninni og líklegast var hvítur kominn með þægilegra tafl þegar jafntefli var samið. Líklegast skynsamlegast hjá Degi að þiggja boðið áður en hvítur lagar stöðuna of mikið.

Bárður ákvað að taka skynsemina á þetta eins og Dagur og þáði jafnteflisboð með aðeins verra tafl.

Miðað við tímanotkun virðist Benedikt Þórisson hafa verið nokkuð vel undirbúinn fyrir Sveshnikov afbrigði Björns Hólm.  Endatafl með mislitum biskupum gaf ekki sénsa á neinn og jafntefli niðurstaðan.

Ingvar Wu hefði klárlega átt að fá meira úr skák sinni við Július Friðjónsson á fimmta borði. Ingvar hafði lengi gott frumkvæði og svo umframpeð en náði ekki að nýta sér það og jafntefli niðurstaðan.

Lenka vann með svörtu gegn Tjörva Schioth á sjötta borði. Tjörvi setti hróka sína klaufalega á sömu skálínu og biskup Lenku kom úr djúpinu og hrifsaði skiptamun. Hvítur lagði niður vopn fljótlega eftir það.

Fleiri óvænt úrslit komu í hús og ljóst að mikil spenna hefur færst í mótið.

Lenka og Gauti efst og jöfn og mætast að öllum líkindum í næstu umferð. Þéttur pakki með 2,5 vinning kemur svo þar á eftir.

Fleiri myndir frá umferðinni (Myndir: Una Strand Viðarsdóttir)

- Auglýsing -