Vikan í skák er nýr liður hér á Skak.is þar sem farið verður yfir atburði liðinnar viku hér heima og í skákheiminum. Stiklað á stóru og til gamans gert!

Daniil Dubov. Mynd: David Llada, FIDE
  • Jafntefli Dubov og Nepomniachtchi vakti mikla athygli á Heimsmeistaramótinu í hraðskák á dögunum. Dæmt var tap á þá báða eins og frægt er orðið. Ekki er beint hægt að segja að þér séu að iðrast en síðastliðinn þriðjudag mættust þær aftur á Titled Tuesday móti chess.com. Þeir endurtóku riddaradansinn. Hikaru Nakamura lætur sig yfirleitt ekki vanta í „viral“ augnablik og tók að sjálfsögðu þátt í vitleysunni og gerði viðlíka jafntefli við Nepo.

  • Daniil Dubov vann þrátt fyrir enn eitt jafnteflið við Nepo sigur á Titled Tuesday. Eduardo Iturrizaga vann hitt mótið en tvö Titled Tuesday fara alltaf fram, early Titled Tuesday og late Titled Tuesday. Titled Tuesday virðist bara bæta í en 733 keppendur tóku þátt í early mótinu sem er met og 555 í late sem er líka met!
  • Ray Robson virðist vera einn fremsti þrautakóngur heims í dag en hann vann sinn 5ta heimsmeistaratitil en chess.com hefur haldið mót í Puzzle Rush siðan 2020 og Ray Robson hefur unnið þau öll!
Kramnik að tafli gegn Carlsen Mynd: Alina l’Ami/Tata Steel Chess.
  • Fjórtándi heimsmeistarinn Vladimir Kramnik hefur farið mikinn undanfarnar vikur í baráttu sinni gegn svindli á netinu.  Kramnik hefur þó kannski farið full frjálslega með staðreyndir og tölfræði og gengið svo langt að saka Nakamura um svindl. Gekk það svo langt að Vladimir Kramnik var „sviptur tjáningarfrelsi“ á Chess.com miðlinum en getur þó að sjálfsögðu enn haldið baráttu sinni áfram á samfélagsmiðlum. Við mælum með að fylgja Kramnik á samfélagsmiðlinum X (twitter). Kramnik hefur nokkuð verið í samstarfi við Levitov chess og hér er athyglivert viðtal við svindlara af netinu, á rússnesku en textað!

  • Vignir Vatnar Stefánsson náði persónulegu meti á chess.com í vikunni, hann fór í 2869 hraðskákstig sem er það hæsta sem Íslendingur er með á chess.com í augnablikinu og líklega það hæsta sem náðst hefur…nema einhver vilji gefa sig fram nafnlaust með betri hraðskákstig! Vignir beitti aðferð sem kallað er „að farma“ þegar hann lagði niðurbrotinn Úzbeka 18-0.

  • Ritstjórinn Björn Þorfinnsson náði einnig sínum hæstu stigum, hann komst í 2797 hraðskákstig, grátlega nálægt 2800 stiga múrnum!

Vignir Vatnar að afli.

  • Sjávarvíkin hóf taflmennsku um helgina! Flestir af fremstu skákmönnum heims, margir af þeim efnilegustu og heimsmeistarinn Ding loksins kominn úr dvala. Það verður gaman að fylgjast með á næstu tveim vikum eða svo!

  • Taflfélag Reykjavíkur tilkynntu breytingar á stjórn. Gauti Páll Jónsson er starfandi formaður út kjörtímabilið og Una Strand Viðarsdóttir er varaformaður.

  • Gunnar Freyr Rúnarsson er nýr íslenskur titilhafi! Gunnar náði CM titlinum með 50% árangri á EM Taflfélaga. Við óskum honum til hamingju með það!

  • Magnus Carlsen dróg sig formlega úr Áskorendamótinu í vikunni…sem eru í raun engar fréttir!

  • Evrópumót kvenna í at- og hraðskák fór fram þessa helgi í Monaco. Kosteniuk er líkleg í að taka tvennuna.

  • Hin 8-ára Bodhana Sivanandan virðist ekkert vera að grínast eins og sjá má á úrslitum hennar á EM kvenna í hraðskák!

  • Arnold hefur alltaf gaman af því að tefla. Hér teflir hann við annað vaxtaræktartröll, sjálfan Hulk, Lou Ferrigno. Arnold virðist betri skákmaður af stöðunni að dæma!
- Auglýsing -