Í gær hófst skákhátíð í Tékklandi, nánar tiltekið í borginni Marianske Lazne. Þar er teflt á Marienbad Open sem er flokkaskipt skákhátíð.  Hannes Hlífar Stefánsson (2498) teflir í lokuðum GM-flokki og er því í raun ekki að tefla á opna mótinu.

Flokkur Hannesar er í anda lokaðra móta sem fram fara í hverjum mánuði í Búdapest. 10 keppendur og þar af þrír stórmeistarar þannig að stórmeistaraáfangar eru í boði. Hannes er stigahæstur keppenda og ætti því að vera sigurstranglegur í flokknum.

Í fyrstu umferðinni í gær fékk Hannes svart á næststigahæsta keppandann, Petr Haba (2437). Tefld var Berlínarvörn og greinilega að hvorugur ætlaði að rugga neinum bátum í þessari skák!

Hannes fær hvítt á alþjóðlega meistarann Filip Haring (2432) frá Slóvakíu í 2. umferðinni

- Auglýsing -