Eitt vinsælasta mót ársins Tata Steel mótið er hafið í Wijk aan Zee eða Sjávarvíkinni eins og hún er oft kölluð. Fremstu skákmenn eru mættir til leiks en að þessu sinni vantar þó sjáanlega heimsmeistarann fyrrveradi, Magnus Carlsen. Margir bíða þó spenntir eftir að sjá hvað núverandi heimsmeistari, Ding Liren, gerir á mótinu.

Ding er stigahæstur keppenda en á hæla hans koma Nepomniachtchi og Alireza Firouzja. Núverandi meistari, Anish Giiri, er svo mættur á heimavöllinn og freistar þess að verja titilinn frá því í fyrra.

Fjórar skákir unnust í fyrstu umferðinni og unnust þær allar með svörtu mönnunum!

Ding Liren er núverandi heimsmeistari í skák en á sínum tima hefðu flestir veðjað á að undabarnið Wei Yi yrði næstur í röðinni. Wei Yi var kominn með um 2730 skákstig aðeins 16 ára og virtist stefna í allra fremstu röð. Eitthvað hægðist á undraverðri upprisu Kínverjans. Hann hefur nánast staðið í stað stigalega síðustu 8 ár ogekki teflt neitt sérstaklega mikið. Wei Yi er þó enn aðeins 23 ára gamall og númer 12 í heiminum. Hann minnti á sig með sigri í fyrstu umferðinni. Andstæðingur hans var Íslandsvinurinn Alexander Donchenko sem vann sér rétt til þátttöku á mótinu með því að vinna Áskorendaflokk (Challengers) flokkinn í fyrra.

Wei Yi var alltaf þekktur fyrir hvassan sóknarstíl og gríðarsterka útreikninga á varíöntum. MIðað við þá styrkleika var Donchencko kannski full mikið að hleypa Kínverjanum á þann hluta svellsins sem hann er hvað bestur í!

Alireza Firouzja vann sig á dögunum inn á Áskorendamótið í skák með því að taka þátt í hálfgerðu skunkamóti (á hans mælikvarða) í Frakklandi og hreinsa það upp. Hann hélt uppteknum hætti og lagði heimamanninn Jorden van Foreest að velli með mikilli seiglu í jafnteflislegu endatafli.

Annar ungur heimamaður, Max Warmerdam, lá einnig í valnum en hann mætti riddarameistaranum Ian Nepomniachtchi. Kraftmikil skák hjá Nepo sem nýtti sér vel sterkan biskup sinni á löngu skálínunni og blés til óstöðvandi sóknar.

Anish Giri náði að kreysta fram vinning gegn Heimsmeistara kvenna, Ju Wenjun. Mögulega hafði hann heppnina með sér, sú kínverska trikkaði líklegast af honum skiptamun í miðtaflinu.

21.b4! cxb3 e.p. 22.Rxe7 Dxd7 23.Ba3 og skiptamunurinn fellur. Giri hafði nægar bætur og náði að kreysta fram vinning í endataflinu, sú kínverska var ekki þvinguð til að fórna skiptamun til baka en að öllum líkindum átti hún að halda hróksendataflinu.

Vidit og Ding Liren sættust á skiptan hlut og hið sama gerðu Pragganandhaa og Maghsoodloo og eins Gukesh og Abdusattorov.

Í Áskorendaflokki er sjálfur Hans Niemann mættur til leiks en hann vekur alltaf athygli. Hann vann í fyrstu umferð. Nær hann að tryggja sig í aðalmótið að ári og mæta þá mögulega Carlsen aftur?

14 skákmenn eru í hvorum flokki og tefldar eru 13 umferðir. Fjórar umferðir og svo frídagur fyrst um sinn en frídagarnir eru alls þrír!

- Auglýsing -