Tata Steel mótið í Sjávarvíkinni er oft eitt athyglisverðasta stórmót ársins. Sökum lengdar mótsinsog meiri „vídd“ í keppendalistanum fáum við mun minna um jafntafli heldur en á venjulegum ofurmótum. Dagurinn í dag var gott dæmi þar sem fimm skákir unnust á hvítt.

Allireza Firouzja er lítið fyrir stutt jafntefli og skilur ekkert í þeim, sérstaklega í Sjávarvíkinni þar sem hann telur skákmenn ekkert betra hafa að gera en tefla. Þetta hefur skilað sér í aðeins tveim jafnteflisskákum hjá Alireza í níu umferðum. Hann náði efstu mönnum í gær en skilaði af sér forystunni með því að lúta í dúk gegn Donchenko, dýrkeypt tap!

Alireza tefldi byrjunina af krafti og var með aðeins betra samkvæmt tölvunum en missti þráðinn algjörlega í miðtaflinu og tapaði peði og svo hrundi staðan. Skiljanlegt svosem enda svarta staðan greinilega erfiðari í meðhöndlun.

Giri og Gukesh gerðu jafnefli við sína andstæðinga og það opnaði hurðina fyrir Pragganandhaa og Abdusattorov að ná þeim á toppnum.

Pragga kæfði frumkvæði Ju Wenjun í tveggja riddara tafli ítalska leiksins. Beitti Indverjinn nýmóðins h4-framrás og tók smátt og smátt yfir alla stöðuna.

Abdusattorov nýtti sér niðurbrotinn Jorden van Foreest sem er heillum horfinn á mótinu. Hollendingurinn gaf án þess að tapa liði í miðtaflinu með líklegast strategískt tapað tafl en uppgjöfin ber engu að síður lit af litlu sjálfstrausti!

Wei Yi lagði Nepo og Parham lagði Warmerdam.

Staðan:

Fjórir jafnir og efstir og þrír í seilingarfjarlægð. Miklar líkur á að við fáum jafnvel einvígi um titilinn!

Í áskorendaflokki heldur Heimsmeistari unglinga, Marc’Andria Maurizzi hálfs vinnings forskoti, nú á Mendonca.

Tíunda umferð fer fram á morgun, miðvikudag og svo er frídagur framundan.

- Auglýsing -