Gukesh að tafli. Mynd: Heimasíða mótsisn/David Llada.

Indverjinn Dommaraju Gukesh er efstur í Sjávarvíkinni ásamt Nodirbek Abdusattorov en þeir voru einu skákmennirnir í toppbaráttunni sem náðu að vinna sína skák. Heimsmeistarinn Ding Liren hefur ekki átt gott mót og virðist hugarfarið eitthvað í ólagi auk þess sem hann virkar einfaldlega ryðgaður. Ian Nepomniacthchi náði í smá hefnd með því að leggja hann í umferð dagsins.

Gukesh náði að vinna sína skák með svörtu gegn Donchenko. Þjóðverjinn lagði mikið á stöðuna í drottningarbragðs-peðastöðu. Á endanum skildi framrásin eftir fleiri veikleika en hitt og Gukesh hafði betur í flækjum í miðtaflinu.

27…Dxd5! var krúttleg krossleppun.

Skák Abdusattorov var týpísk fyrir hans stíl, mjög sveiflukennd og baráttuþrekið algjört hjá Úzbekanum skemmtilega. Hann fékk verra í byrjun, náði frumkvæði en var svo með skítastöðu sem hann náði að redda….í jafntefli en náði svo einhvern veginn að kreysta fram sigur í lokin. Reyndar þurfti afleiki hjá Max Warmerdam sem tapaði líka á grátlegan hátt í gær gegn Maghsoodloo.

(Mynd Stev Bonhage)

Ian Nepomniachchi var greinilega í hefndarhug gegn Ding. Hann blés til sóknar með g-peðs framrás í Spánverjanum og yfirspilaði Heimsmeistarann í sókninni. Ding algjörlega heillum horfinn.

Staðan:

Gukesh og Abdusattorov efstir og jafnir og stutt í Pragga og Giri. Einvígi ekki ólíklegtí lokin!

Í áskorendaflokki hefur Heimsmeistari unglinga, Marc’Andria Maurizzi eins vinnings forskot á Mendonca.

Ellefta umferð fer fram á föstudaginn, frídagur er á morgun, fimmtudag.

- Auglýsing -