Vikan í skák 22-28. janúar er hér tekin fyrir! Skákvikan er glænýr liður á Skak.is þar sem farið er yfir nýliðna viku í skákinni, fréttir og úrslit af innlendum sem erlendum vettvangi tekin fyrir…allt á léttu nótunum!

- Skákdómarinn Páll Sigurðsson sýndi hvað í honum býr og varð hlutskarpastur á Skákkvöldi TG mánudagskvöldið 22. janúar. Páll hlaut 6 vinninga af 6 mögulegum! Athyglisvert er að 80% keppenda voru í aldursflokknum 50+!

- Örn Leó Jóhannsson varð hlutskarpastur á Þriðjudagsmóti TR með fullt hús 5 af 5.

- Sigurvegarar á Titled Tuesday urðu Hikaru Nakamura í fyrra mótinu og Jan-Krzysztof Duda í seinna mótinu.
- Magnus Carlsen hlakkar til móts í Chess960 (Fischer slembiskák) með klassískum tímamörkum sem fer fram í febrúar! Sjá einnig tilkynningu chess.com
The format I have been waiting for♟️ pic.twitter.com/d7pbQvbiEx
— Magnus Carlsen (@MagnusCarlsen) January 24, 2024

- Gauti Páll Jónsson er ekki bara í stuði á Skákþingi Reykjavíkur. Gauta finnst greinilega mjög gaman að tefla og tók Fimmtudagsmót TR með fullu húsi, 7 vinningar af 7 mögulegum!

Hinn ungi Markús Orri Óskarsson fer vel af stað á Skákþingi Akureyrar og er efstur með fullt hús eftir þrjár umferðir!

- Það er alltaf gaman að hlusta á Magnus Carlsen. Hann var í góðu viðtali við Chess.com í vikunni. Magnus virðist ekki líklegur til að reyna aftur við Heimsmeistaratitilinn í klassískri skák eins og senan er núna, breytinga er þörf til að Magnus myndi hafa áhuga á að reyna aftur við titilinn. Magnus er spurður út í svindl almennt og hvað sé til ráða, áhugavert viðtal!

- Hans Niemann notaði frídag í Sjávarvíkinni til að mjaka sér í 3. sætið á Chess.com á eftir Carlsen og Nakamura, Niemann braut 3200 stiga múrinn á chess.com!

- Gukesh er að standa sig vel í Wijk aan Zee og er í toppbaráttunni. Chessbase India kíktu í heimsókn til hans rétt fyrir mót þar sem litið var á stúderingaaðstöðu hans í Chennai.
- Bodhana sem kemur á Reykjavíkurskákmótið tók þátt í áhugaverðu einvígi gegn gömlum breskum meistara. Bodhana er aðeins 8 ára og er hreint ótrúlega góð…vægast sagt! Sjón er sögu ríkari!
- Vladimir Kramnik heldur áfram baráttu sinni gegn svindli og vill láta rannsaka allskonar menn. Það nýjasta Le Quang Liem. Enn notast Kramnik við chess.com accuracy og það sem er líklegast verra er að hann notar vafalítið ekki meira en svona depth 18. Liem var N.B. heimsmeistari í hraðskák 2013, frábær skákmaður og hraðskákmaður.
Le Liem FIDE 2731 2707
89,4 92,5 89,8 93,8 89,5
89,6 89,8 89,5 90,2
average 90,5Very high average and that 93,8 event is quite unusual for any player. At least none of top players managed that within a year period I think. In my opinion must be checked deeper
— Vladimir Kramnik (@VBkramnik) January 26, 2024
- Spurning er hvort að Pragganandhaa hafi orðið fyrsti skákmaðurinn til að leggja ríkjandi heimsmeistara karla og kvenna á sama mótinu? Pragga vann gegn Ding Liren og Ju Wenjun í Wijk aan Zee.

- Skákdagurinn var haldinn 26. janúar og varð Friðrik Ólafssonar 89 ára á þeim degi. RÚV bauð upp á skáktengda dagskrá og ýmislegt skemmtilegt var á döfinni.
European Chess Union congratulates Fridrik Olafsson on his 89th birthday anniversary! ????
Fridrik Olafsson is the first chess player from Iceland who accomplished the Grandmaster title. He was a six-time Icelandic Chess Champion and took a title of Nordic Chess Champion twice.… pic.twitter.com/JYsIksR5Wc
— European Chess Union (@ECUonline) January 26, 2024

- Don Roberto sjálfur, Róbert Lagerman, varð hlutskarpastur á Friðriksmóti Vinaskákfélagsins.
- Gauti Páll opnaði nýjan lið á Skak.is, föstudags-tímavélina þar sem skoðaðar eru gamlar greinar úr Tímaritinu Skák. Fyrst á dagskrá var grein Jóns L. Árnasonar þar sem hann lýsir tímabili þar sem hann tefldi 50 skákir í röð á ferðalagi um heiminn.
- Baráttan um hver sé stigahæsti Indverjinn heldur áfram. Vidit tók yfir sætið á laugardeginum en Pragga var nýbúinn að komast upp fyrir Anand.
Vidit Gujrathi is now the #1 rated chess player in India AND he has just broken into World Top 10 for the first time ever.
Unbelievable. So many ups and downs over the last few years, and Vidit kept fighting. Excited to see what’s next. pic.twitter.com/PzNp1hvK2u
— GothamChess (@GothamChess) January 27, 2024

- Stórmeistarinn Guðmundur Kjartansson hefur sett inn sitt fyrsta vídeó á nýrri YouTube-rás. Gummi kallar hana „GM Chess Endgames“. Ef það er eitthvað sem Gummi kann þá eru það endatöfl enda vill það oft verða þannig að lengstu skákir á mótum eru einmitt hjá Guðmundi. Hann hélt t.a.m. tvær umferðir í röð hrók gegn hrók og riddara á síðasta EM landsliða! Í fyrsta myndbandinu skoðar Gummi endatafl Petrosian gegn Friðrik Ólafssyni þar sem hrókur og tvö peð pressa gegn hrók og einu peði.

- Ding Liren heimsmeistari olli miklum vonbrigðum á Tate Steel mótinu. Hann virkaði ryðgaður og augljóst eftir því sem leið á mótið að hausinn var ekki til staðar. Hann endaði með 6 vinninga af 13 og í lokin var hann farinn að klára snemma með jafnteflisskákum sem tóku stuttan tíma, eins og hann hvorki vildi vera á staðnum né vera að tefla. Ding hafði meira að segja heppnina með sér í annarri af tveimur sigurskákum hans.
Eftir 52…Hxh2? hjá Ding í vinningsstöðu kom 53.Ha5+ Ke6 54.Hxe5! og hvítur bjargar sér út af patt-trikkinu. Warmerdam lék svo af sér í dauðu jafntefli.

- Íslenskir krakkar úr Skákskólanum háðu vináttukeppni við krakka frá Washington um helgina. Skemmtilegt mót og mögulega samstarf til framtíðar!

- Íslandsmót stúlknasveita var gríðarlega vel sótt. Yfir 90 stelpur mættu til leiks og kepptu í þremur aldursflokkum. Landakotsskóli vann yngsta flokkinn, Smáraskóli miðstigið og Rimaskóli tók efsta stigið.
- FIDE hefur tilkynnt hvernig hægt er að vinna sér rétt í Áskorendamótið 2026. Nokkrar breytingar hafa orðið. Fyrsta breytingin er að stigasætið er nú meðaltal 6 mánaða til að koma í veg fyrir ruglið sem átti sér stað í lok árs á ýmsu mótaflokki Firouzja og fleiri. Seinna atriðið er að sá er tapar heimsmeistaraeinvíginu á ekki lengur gefins sæti í Áskorendamótið. Aukasætið fyrir í staðinn á FIDE stigamótaröðina og sá sem tapar einvíginu fær það metið inn á mótaröðina.’
- Það er Wei Yi sem vinnur Tata Steel 2024 eftir stórskemmtilegt mót með glimrandi hressri taflmennsku! Bráðabana þurfti til þar sem Wei Yi lagi Abdusattorov í undanúrslitum og svo Gukesh í úrslitunum.
Wei Yi is crowned as the new @tatasteelchess Masters 2024 champion. @DGukesh finishes as runner-up.#TataSteelChess pic.twitter.com/NySdD0yD9s
— Ankhi Dutta (@ankhitweets) January 28, 2024
















