Tveir umferðir eru búnir á Norðurlandamóti ungmenna sem fram fer í Finnlandi um helgina. Íslendingar hafa byrjað prýðilega og þá sérstaklega í c-flokki (u15).

A-flokkur (u20)

FM Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2362) og Benedikt Briem (2149) tefla í efsta flokki og er Aleksandr stigahæstur keppenda. Benedikt er sjötti í stigaröðinni.

Benedikt vann í fyrstu umferð en Sasha gerði jafntefli. Þeir gerðu jafntefli í innbyrðis skák í dag. Benedikt  er í 2.-4. sæti með 1½ vinning en Sasha hefur 1 vinning.

Chess-Results.

B-flokkur (u17)

Ingvar Wu Skarphéðinsson (2034) og Gunnar Erik Guðmundsson (1977) eru í miðjum hópi í sinum aldursflokki númer 6 og 7 í styrkleikaröð.

Ingvar hefur 1½ eftir gott jafntefli við stigahæsta keppandann í dag. Gunnar Erik hefur 1 vinning.

Chess-Results

C-flokkur (u15)

Matthías Björgvin Kjartansson (1735) og Mikael Bjarki Heiðarsson (1711) eru í 9. og 10. sæti í styrkleikaröðinni.

Þeir félagarnir hefur heldur betur byrjað glimrandi vel og hafa báðir fullt hús eftir að hafa teflt við töluvert stigahærri keppendur báðum umferðum. Tveir efstir og jafnir mætast í þriðju umferð.

Chess-Results

D-flokkur (u13)

Í D-flokki er Josef Omarsson (1714) fjórði stigahæsti keppandinn en Sigurður Páll Guðnýjarson (1683) er númer sex.

Sigurður Páll hefur 1½ vinning en Jósef hefur 1 vinning.

Chess-Results

E-flokkur (u11)

Í yngsta flokknum er Birkir Hallmundarson (1527) næst-stigahæstur keppenda en Tristan Fannar Jónsson (1216) er tíundi.

Birkir hefur 1 vinning en Tristan er ekki kominn á blað á sínu fyrsta Norðurlandamóti.

Chess-Results

Umferðir hefjast klukkan 07:00 og 13:00 en hálftíma fyrr á sunnudeginum fyrri umferðin og einum og hálfum tíma seinni umferðin.

 

- Auglýsing -