Fjölmennt Hraðskákmót taflfélaga 2024 var haldið í Hlöðunni Gufunesbæ á góðviðris föstudagskvöldi. Sextán skáksveitir tóku þátt í mótinu, rúmlega 100 þátttakendur. Hlaðan í Gufunesbæ sem er í eigu ÍTR er heppilegt og huggulegt húsnæði fyrir skákmót. Vissulega reyndi þó á þátttakendur þar sem bekkurinn var þéttsetinn svo vægt sé að orði komist. Skipulagðir skákmenn hreyfðu sig samt lipurlega og í góðum takti á milli borða líkt og þeir meðhöndla taflmennina á skákborðinu.

Það voru 9 skákfélög sem sendu skáksveitir til leiks, 9 A sv, 4 B sv, 2 C sv og 1 D sv.

Skákdeild Fjölnis sá um framkvæmd Hraðskákmótsins líkt og fyrri ár. Skákmenn mættu nokkuð stundvíslega til leiks og fyrsta umferðin af tíu var sett af stað rúmlega kl. 19 og teflt var til rúmlega 22:00 með 30 mínútna skákhléi.

Baráttan um efstu sætin var öll hin fjörugasta. Stórir sigrar og slæm töp hífðu sveitirnar upp eða hlunkuðu niður í borðaröðun. Víkingasveitin settist þó við 1. borð strax í annarri umferð og því vígi héldu þeir nær undantekningarlaust út mótið. TR-A gerði Víkingunum þó skráveifu í 4 umferð með 4 – 2 sigri. Mikilvægur sigur Taflfélagsmanna, því þegar upp var staðið eftir 10 umferðir, reyndust þessar tvær sveitir jafnar að stigum. Víkingasveitin var þó nokkuð yfir á vinningum. Vígreifir Víkingar sýndu það svo og sönnuðu með öruggum 5-1 sigri í úrslitaeinvígi að þeirra skáksveit var sterkust og Hraðskák-meistaratitillinn verðskuldaður.

Úr úrslitaeinvíginu
Silfursveit TR
Sigurvegararnir í Víkingaklúbbnum

Í þriðja sæti lenti A sveit Breiðabliks og efta B sveitin TR-B. Þrjár efstu sveitirnar og efsta B sveitin hlutu verðlaunagripi til eignar að launum og hver liðsfélagi sveitanna bókina Einvígi allra tíma eftir Guðmund G. Þórarinsson fv. forseta SÍ.

Mótið var allt í senn sterkt, spennandi og skemmtilegt. Þátttakendur á öllum aldri.

A sveitirnar röðuðu sér nokkuð í efstu sætin en fyrir B sveitirnar voru tækifærin til staðar að hækka á stigum sem svo sannarlega varð raunin. Sem dæmi hækkuðu allir 7 liðsmenn B sveitar Fjölnis á stigum. Maður mótsins reyndist óumdeilanlega Hilmir Freyr Heimisson 1. borðs maður Taflfélags Vestmannaeyja sem gerði sér lítið fyrir og halaði inn 9,5 vinningum af 10 fyrir sína sveit.

Hilmir var í stuði!

Í skákhléi var boðið upp á Domino´s pítsur, gos, kaffi og léttöl sem virtist fara vel í þá sem nutu. Skákstjórn var í öruggum höndum forsetans Gunnars Björnssonar en  skipulag mótsins var í höndum Helga Árnasonar form. skákdeildar Fjölnis.

- Auglýsing -