Þann 16. mars frumsýndi Einar Kárason Heimsmeistarann á Sögulofti Landnámssetursins við mikið lof áhorfenda.

Næsta sýning er 30. mars kl. 20:00 og langar okkur að bjóða meðlimum í Skáksambandi Íslands miðana á sérstöku 2 fyrir 1 tilboði. Til að kaupa tilboðsmiða er best að hafa samband við Landnámssetur Íslands með því að senda tölvupóst á landnam@landnam.is eða hringja í síma 437-1600.

En hver var þessi Heimsmeistari? Hann stóð flestum öðrum framar þegar kom að útreikningum og rökhugsun, enda varð hann heimsmeistari í erfiðustu hugaríþrótt sem mannkynið hefur fundið upp í einvígi sem haldið var á Íslandi. En þrátt fyrir sína snilligáfu kunni hann ekki fótum sínum forráð í daglegu lífi og mannlegum samskiptum.

- Auglýsing -