Sjöunda umferð Íslandsmótsins í skák lauk í kvöld. Helgi Áss Grétarsson heldur áfram ótrúlegri framgöngu sinni og lagði Hannes Hlífar Stefánsson að velli með svörtu mönnunum og hefur nú vinningsforskot á toppnum! Framganga Helga ætti að fá allar fyrirsagnirnar en því miður er það fordæmalaus ákvörðun Héðins Steingrímssonar sem stelur senunni. Héðinn hefur dregið sig úr mótinu eins og DV.is hefur greint frá.

Segja má að nú séu aðeins tveir oddafiskar eftir á mótinu, þeir Helgi Áss Grétarsson og Vignir Vatnar Stefánsson. Virðist útséð að aðeins Vignir Vatnar geti náð Helga og stöðvað hann í að vinna Íslandsmeistaratitilinn. Ákvörðun Héðins þýðir að Helgi Áss fær fríaan vinning í næstu umferð og frídag í stað erfiðrar skákar með svörtu mönnunum.

Lengi leit út fyrir að Hannes Hlífar Stefánsson yrði fyrstur til að leggja Helga að velli.  Hannes fékk mjög vænlegt tafl eftir kröftuga taflmennsku gegn Pirc-vörn Helga.

17.Rxf7! Hxf7 18.Bxf7 Kxf7 19.Dh6 Rf8 20.f3! gaf hvítum yfirburðatafl.

Helgi gat ekki leyft opnar línur að kóngnum og varð að gefa peð með 20…e3! sem þýddi að Hannes hafði hrók og þrjú peð gegn tveimur léttum mönnum. Samkvæmt stigum ætti það að jafngilda því að vera tveimur peðum yfir. Staða Helga samsvaraði sér hinsvegar nokkuð vel og líklegast missti Hannes af sénsinum að gera út af við skákina snemma þegar hann eyddi tíma í De3-b3-e3 og gaf Helga tíma. Helgi náði að mynda góða blokkeringu í stöðunni og Hannes átti erfitt með að finna plan til að bæta stöðuna. 38.Ke3?? var svo skelfilegur leikur sem gerði Helga skyndilega kleyft að frelsa alla menn sína.

38…c5! og hvítur varð að hörfa með 39.Kf2 þar sem 39.dxc5? er svarað með 39…Hxf3+ 40.gxf3 Dxf3 og mát! Staða Helga vaknaði til lífs og hvítur gafst upp eftir aðeins örfáa leiki.

Vignir náði ekki að halda í við Helga í umferðinni. Vignir fékk enda erfitt verkefni, svart á stigahæsta skákmann móstsins, Hjörvar Stein Grétarsson. Framan af skák virtist vera einhver möguleiki þar sem Vignir tefldi af miklu öryggi og virtist þekkja afbrigðið mun betur en Hjörvar. Klukkutímaforskot var komið á klukkuna á tímabili. Það jafnaðist þó nokkuð út og Hjörvari tókst að finna fína leiki, fylgdu þeir í raun skák Ehlvest og Yusupov frá 1991 fyrstu 15 leikina. Þeirri skák lauk með jafntefli og skák þeirra félaga í kvöld einnig!

Hjörvar náði að hanga á umframpeði í endataflið en Vignir hafði mjög virka stöðu og hættulegt frípeð. Vignir hélt góðri virkni og mótspil hans var tímanlega og staðan leystist upp í jafntefli.

Hilmir og Aleksandr voru næst því að geta komist aðeins nær oddafiskunum með því að ná í sigur í umferð dagsins. Sigur virtist hinsvegar aldrei á boðstólnum í þessari skák. Aleksandr bauð upp á einn dýpsta undirbúning sem sést hefur á Íslandsmóti í skák! Hann gerði lítið annað en bæta við tíma sinn og eftir 22…Kf5 hafði hann 1:37 á klukkunni!

Staðan var þá þegar komin út í hróksendtafl, hvítur hafði peði meira en nánast enga leið til að nýta umframpeðið. Hilmir reyndi að gefa umframpeðið en svartur hafði næga virkni til að ná tímanlegu mótspili.

Bárður var háll sem áll

Bárður virtist lenda í basli í miðtaflinu þar sem drottning hans reyndi að snúa heim með peð í ránsfeng. Dagur hótaði að loka drottninguna inni en Bárður náði að reikna sig út úr vandræðunum og komst í endatafl þar sem það var svo Bárður sem „trikkaði“ Dag til baka og gómaði hrók hans í prísund.

Guðmundur hefur átt erfitt mót en náði sér í góðan sigur í dag með svörtu gegn Olgu Prudnykovu. Skákin virtist í nokkru jafnvægi en þá hóf Olga varhugaverðar aðgerðir á kóngsvæng þegar hún þurfti að huga betur að vörninni. Guðmundur blés til sóknar og náði að gera út um skákina.

25…c4! var fallegur peðsleikur. Peðið er á leið á c3 þar sem mátnetið í kringum hvíta kónginn er orðið stórhættulegt. Dráp með b-peði opnar fyrir skák á b4 og dráp með d-peði opnar fyrir biskupinn á f5, í báðum tilfellum með máti. Snaggaralegt!

Útsending umferðarinnar

Úrslit

Svörtu mennirnir drjúgir í 7. umferðinni! Ekki ein einasta sigurskák á hvítt í tefldri skák!

Staðan

Staða Helga er nú orðin mjög vænleg. Heill vinningur í forskot og þriðja sætið er tveimur vinningum á eftir.

Pörun 8. umferðar

Í 8. umferðinni fær Helgi aldeilis mikilvægan vinning sem gæti farið langt með að tryggja honum titilinn þegar uppi er staðið. Vignir verður að leggja Olgu að velli og hanga allavega vinningi á eftir Helga en þeir mætast í lokaumferðinni.

8. umferð hefst klukkan 15:00 á morgun, miðvikudag.

- Auglýsing -