Áttunda umferð Skákþings Íslands hefst kl. 15 í dag. Helgi Áss er efstur með 6½ vinning , Vignir Vatnar annar 5½ vinning og Hilmir Freyr þriðji með 4½. Ólíklegt er að aðrir en oddafiskarnir þrír nái að blanda sér í baráttuna um gullið.

Helgi Áss fær fríkeypis vinning í dag gegn Héðni. Vignir teflir við Íslandsmeistara kvenna, Olgu Prudnykovu og Hilmir mætir Guðmundi Kjartanssyni. Vignir og Hilmir þurfa að vinna sínar skákir ætli þeir að halda í Helga.

Umferð dagsins:

  • Héðinn Steingrímsson (3) – Helgi Áss Grétarsson (6½) 0-1*
  • Vignir Vatnar Stefánsson (5½) – Olga Prudnykova (1½)
  • Guðmundur Kjartansson (3) – Hilmir Freyr Heimisson (4½)
  • Aleksandr Domalchuk-Jonasson (4) – Hannes Hlífar Stefánsson (4)
  • Bárður Örn Birkisson (3) – Hjörvar Steinn Grétarsson (3)
  • Lenka Ptácníková (2) – Dagur Ragnarsson (2½)

Umferðin hófst kl. 15. Bein lýsing Ingvars Þórs hefst um tveimur tímum síðar.

Tilvalið að kíkja á skákstað. Skáktilboð á veitingastaðnum. 

 

- Auglýsing -