Aleksandr Domalchuk-Jonasson tapaði í dag í 2. umferð á Cesme Open sem fer fram í samnefndri borg í Tyrklandi í 10 skiptið. 75 keppendur taka þátt og eru allir með yfir 2000 elóstig. Aleksandr er númer 15 í styrkleikaröðinni en stigahæstur er úkraínski stórmeistarinn Vitaly Bernadskiy (2563).

Aleksandr hafði svart gegn tyrkneskum CM Emre Kirilmaz (2195). Byrjunin gekk fínt og fór Aleksandr í miðtaflið með jafnt tafl og fékk yfirhöndina í örskotstund.

Aleksandr valdi hér 27…c5? en lenti í vandræðum með peðið á c5 og tapaði liði í kjölfarið á baráttunni um það peð. 27…h5! hefði verið mun vænlegra og hvítur þarf skyndilega að hafa áhyggjur af kóngsvæng sínum sem mun veikjast í framhaldinu.

Á morgun er tvöfaldur dagur og byrjar Aleksandr á að mæta CM Timur Onal (2078) fæddum árið 2010. Skák þeirra er á 28. borði þannig að skák okkar manns helst inni í beinum útsendingum mótsins á lichess.

- Auglýsing -