Þeir Adam og Josef Omarssynir eru báðir að eiga fínt mót alþjóðlega mótinu sem fram fer í Krakow í Póllandi. Keppt er í fjórum flokkum og taka þeir þátt í B-flokki ásamt hinum frægu Botez-systrum. Adam er efstur ásamt tveimur öðrum með 4 vinninga af 4 mögulegum. Josef er taplaus með 3 vinninga.
Adam mætti næststigahæsta keppanda flokksins Dariusz Klimaszewski (2118) og hafði hvítt. Adam tefldi glimrandi skák. Dariusz beitti kóngsinderskri vörn sem Adam þekkir sjálfur vel og beitti hinni svokölluðu „Bayonet-árás“. Adam náði mjög hagstæðum úrslitum og stóð mun betur með valdaðan frelsingja og betri biskup. Svartur hleypti þá Adam í taktík sem hann missti ekki af eftir 29…Bd6??
Adam nýtti sér færið 31.Bxg6 og fór úr vænlegu tafli til vinningsstöðu!

Josef hafði svart gegn úkraínska skákmanninum Oleksii Rozhok (1959) og endaði sú skák með jafntefli.
Fínn árangur hjá okkar mönnum. Í fimmtu umferðinni mætir Adam stigahæsta keppanda mótsins, Andrzej Gbyl (2152) og hefur svart. Josef hefur hvítt gegn Mateusz Skomial (2083).
















