Aleksandr Domalchuk-Jonasson náði að rétta út kútnum eftir eilítið brösuga byrjun á alþjóðlegu móti í Cesme í Tyrklandi. Aleksandr hafði hálfan vinning eftir fyrstu tvær umferðirnar en vann báðar skákir sínar í dag á tvöföldum degi.
Í fyrri skákinni mætti hann CM Timur Onal (2078) fæddum árið 2010 og hafði hvítt. Upp kom Catalan-byrjun og fékk Aleksandr nokkuð týpískt og þægilegt tafl fyrir þær stöðutýpur. Tyrkinn fékk einhverja sénsa á mótspili en náði ekki að nýta sér þá og frípeð Aleksandrs á a-línunni varð of hættulegt og réði úrslitum.
Seinni skákin var gegn öðrum heimamanni, Emre Demirbas (2012). Aleksandr hafði svart og fékk snemma nokkuð þægilegt tafl með biskupaparið. Hann náði að véla mann af andstæðingi sínum í endataflinu sem einfaldaði úrvinnsluna töluvert.
Aleksandr hefur nú 2,5 vinning af 4 og fikrar sig nær efstu borðunum.
Andstæðingur Aleksandr í 5. umferð er tyrkneskur CM Taylan Ruzgar Ince (2244) og hefur Sasha hvítt. Frídagur er á morgun en aftur tvöföld umferð 27. júní.















