Þeir Adam og Josef Omarssynir eru báðir að standa sig vel á alþjóðlega móti í Krakow í Póllandi. Keppt er í fjórum flokkum og taka þeir þátt í B-flokki ásamt hinum frægu Botez-systrum. Adam er var efstur fyrir umferðina ásamt tveimur öðrum með 4 vinninga af 4 mögulegum og Josef hafði 3 vinninga.

Adam mætti -stigahæsta keppanda flokksins Andrzej Gbyl (2152) og hafði svart. Upp kom kóngsindversk vörn eins og í skákinni fínu í gær en nú hafði Adam svörtu mennina. Hvítur hafði þægilegra tafl og pressu lengst af en Adam var mjög nálægt því að jafna taflið en vanmat möguleika hvíts tengda riddara til e8. Skipamunur féll í kjölfarið og hvítur náði að vinna skákina.
Josef hafði hvítt gegn stigahærri andstæðing, Mateusz Skomial (2083). Josef átti sénsa í lokin þegar hann var að pressa með drottningu+riddara gegn drottningu+biskup en Mateusz náði þráskák áður en of illa fór.
Adam hefur nú 4 vinninga af 5 í 7-17. sæti en Josef hefur 3,5 og er í jöfnu 18. sæti.
Í 6. umferð fær Adamn hvítt gegn Pawel Brzezina (1955) en Josef hefur svart gegn Erdogan Seref (1991).
















