Þeir Adam og Josef Omarssynir hafa nú báðir 4 vinninga að loknum 6 umferðum á opnu alþjóðlegu móti í Krakow í Póllandi. Keppt er í fjórum flokkum og taka þeir þátt í B-flokki ásamt hinum frægu Botez-systrum.

Í 6. umferð hafði Adam hvítt gegn Pawel Brzezina (1955) en lenti í vandræðumí byrjuninni. Honum tókst ekki að vinna sig úr þeim vandræðum og lenti í erfiðri skák sem hann svo tapaði.

Josef heldur áfram að tefla traust og hefur ekki enn tapað skák. Hann hafði hvítt gegn  gegn Erdogan Seref (1991) og skildu leikar jafnir eftir langa og stranga skák.

Bræðurnir eru nú jafnir með 4 vinning af 6 og sitja í 22-47. sæti en Adam er efstur í þeim hóp að oddastigum…skiljanlega!

Í 7. umferð tefla þeir bræður hlið við hlið og stýra báðir svörtu mönnunum. Josef teflir upp fyrir sig og mætir Dario Soldo (2018) frá Austurríki en Adam mætir Darynu Kryvenko (1879) frá Úkraínu.

- Auglýsing -