Í gær fór fram útgáfuhóf í anddyri Laugardalshallar í tilefni af útgáfu bókarinnar Hve þung er þín krúna. Höfundur bókarinnar er Sigurbjorn J. Bjornsson og bókin er söguleg skáldsaga byggð á einvígi aldarinnar þar sem í hverjum kafla fær sögupersóna úr einvíginu fræga orðið og lýsir gangi mála í 1. persónu. Þannig afhjúpast saga einvígisins smátt og smátt með augum allra sem komu að því.

Skákmenn mættu vel til leiks í opnunarhófið þar sem boðið var upp á léttar veitingar. Sigurbjörn lýsti bókinni fyrir gestum og þakkaði fyrir sig og auk þess tóku Guðmundur G. Þórarinsson og Jón Hálfdánarson til máls en þeir komu báðir að eínvíginu hvor á sinn hátt.
Flestir láta strax vel af bókinni og segir t.a.m. FIDE-meistarinn Björn Ívar Karlsson á Facebook: „Hver sögupersóna fær sína rödd í hverjum kafla og ég þurfti stanslaust að minna sjálfan mig á að bókin er skáldaga, því þó hún sé byggð á sönnum atburðum tekur höfundur sér skáldskaparleyfi þegar ýmsir atburðir, samtöl og hugsanir sögupersóna koma fram. Það er óhætt að mæla með þessari bók og hrósa Sigurbirni fyrir frumkvæðið en hann stendur einn að útgáfunni.“

Þeir sem vilja eignast bókina geta haft samband við Sigurbjörn á Facebook eða sent honum tölvupóst á sigur1@simnet.is. Eins er sérstök Facebook-síða tileinkuð bókinni: Bókin er einnig fáanleg í helstu bókaverslunum frá og með deginum í dag en best er auðvitað að fá hana áritaða beint frá höfundi!













