Í dag hófust stórmeistaraflokkar í České Budějovice í Tékklandi þar sem skákhátíð fer nú fram. Íslensku stórmeistararnir Hannes Hlífar Stefánsson, Helgi Áss Grétarsson og Vignir Vatnar Stefánsson taka þar þátt í lokuðum flokkum.

Hannes og Helgi eru í sama flokki og gerðu stutt jafntefli í fyrstu umferð. Tefldu Berlínarvörn og varíantinn þar sem drottningarnar þráleika snemma, eitt algengasta jafnteflið hjá bestu skákmönnum heims ef reykja skal friðarpípu!

Vignir mætti Miras Assylov (2334) FIDE meistari frá Kazakhstan og vann sigur með hvítu mönnunum.

Helgi fær á morgun hvítt gegn FM Ondrej Svanda (2414), Hannes hefur svart gegn Tomas Polak (2523) og Vignir fær svart gegn GM Petr Haba (2427)

- Auglýsing -