Aleksandr Domalchuk-Jonasson hefur lokið leik á opnu móti í Cesme í Tyrklandi. Hann tapaði í lokaumferðinni fyrir gríðarlega efnilegum heimamanni og endaði með 5 vinninga úr 9 skákum. Aleksandr var framan af mót að hrista af sér veikindi þannig að heilt yfir „slapp“ hann nokkuð vel úr mótinu.
Í lokaumferðinni mætti Aleksandr eins og áður sagði efnilegum heimamanni, Demhat Serey (2024). Serey er ekki að drukkna í elóstigum en það er greinilega tímabundið ástand! Hann hafði rétt misst af möguleika á GM áfanga og þessi strákur sem er fæddur 2010 er að hækka yfir 200 elóstig á mótinu!
Aleksandr hafði hvítt í skákinn og fékk fínt tafl…hafði alltaf aðeins betra og var ekki í vandræðum. Í 29. leik fékk Aleksandr dauðafæri…
Hér átti hvítur bombu, 29.Rh6!! og hvort sem riddarinn er tekinn eða ekki mun hrókurinn á c4 ná millileik að skáka eða setja á drottningu og þá er hrókurinn á b5 í dauðanum. Aleksandr fékk raunar aftur sama sénsinn í 31. leik eftir að þeir höfðu endurtekið leiki. Hann lék fyrst 29.Re3?! en í seinna skiptið 31.Hf4? og eftir 31…Hb4 þar sem hrókurinn sleppur kom tímahraksafleikur 32.De3?? og hvítur tapar liði.
Tap því niðurstaðan í lokaumferðinni og lokaniðurstaðan 5 vinningar af 9 mögulegum. Tæp 20 elóstig urðu eftir í Tyrklandi en koma vonandi fljótt til baka!















