Vignir Vatnar Stefánsson vel einbeittur. — Ljósmynd/Ómar Óskarsson

Þrír íslenskir stórmeistarar tefla nú í České Budějovice í Tékklandi þar sem skákhátíð fer nú fram. Íslensku stórmeistararnir Hannes Hlífar Stefánsson, Helgi Áss Grétarsson og Vignir Vatnar Stefánsson taka þar þátt í lokuðum flokkum. Helgi og Hannes eru saman í flokki (A) og svo er Vignir einn í hinum flokknum (B).

Vignir virðist í algjöru banastuði og með sjálfstraustið í botni. Hann hefur byrjað á að knésetja alla sína andstæðinga og hefur 3 vinninga af 3 mögulegum!

Í 3. umferðinni mætti hann þýska alþjóðlega meistaranum Jari Reuker (2391) og hafði Vignir hvítt. Lengst af skákarinnar náði sá þýski að halda „tölvumatinu“ í skefjum en Vignir var alltaf að setja pressu á andstæðinginn.

Má segja að pressan hafi byrjað í 26. leik með 26.Hc1.

Hvítur heldur í frelsingjann á c-línunni og valdar hann óbeint þar sem 26…Dxc5 er svarað með 27.Hd8+ …taktískt mynstur sem „Skák-víkingurinn“ (hóst* höfundur) hefur kosið að kalla drottningar-felluna (e. Queen Sweep)

Tilvera c-peðsins hjá hvítum reyndist mikilvæg og sérstaklega eftir fyrsta alvöru afleik svarts 40…Hd8?? með lítinn tíma á klukkunni!

Vignir fékk tíma til að hugsa málin og lék 41.Ha3! og skyndilega á drottningin fáa góða reiti og c-peð hvíts verður þeim mun hættulegra!

Svartur reyndi að fá mótspil en það endaði á versta veg og Vignir knúði fram uppgjöf í nokkrum leikjum!

Í hinum flokknum hafði Helgi Áss byrjað betur með tveimur jafnteflum. Hann átti hinsvegar ekki góðan dag gegn alþjóðlega meistaranm Samir Sahidi (2477). Helgi tefldi modern-byrjunina sína og náði að komast í miðtaflið í nokkuð góðum málum. Helgi vann peð en hafði tiltölulega verri kóngsstöðu.

Í erfiðri stöðu og í tímhraki varð honum fótaskortur.

Hér verður svartur að drepa á d3 en Helgi lék 27…Hc8?? en eftir 28.Hxh7 er svarta staðan töpuð og Helgi gafst upp.

Hannes hafði hvítt gegn FIDE meistaranum Jakub Stinka (2345). Hannes fékk eiginlega ekkert úr byrjuninni með hvítu og bauð jafntefli áður en það yrði um seinan. Andstæðingur hans þáði boðið.

Hannes og Helgi hafa báðir 1 af 3 í A-grúppunni og þurfa að herða sig. Vignir virðist í góðu formi með 3 af 3 í B-grúppunni og heldur vonandi dampi!

- Auglýsing -