Önnur umferð fór fram í dag á stóra opna mótinu Benasque Open á Spáni. Hvorki fleiri né færri en 502 skákmenn eru skráðir til leiks, yfir 20 stórmeistarar og fjöldi titilhafa. Þeir bræður Adam og Josef Omarssynir eru mættir til leiks á mótið. Þeir fengu erfiða og stigaháa andstæðinga í fyrstu umferð en betur gekk í dag

Adam mætti heimamanni Diego Pinheiro Moraes (1641). Adam gerði mistök í byrjuninni og tapaði skiptamun og peði en blés þá til sóknar og var nokkuð snöggur að snúa á andstæðinginn enda vann hann í aðeins 25 leikjum.

Josef mætti líka heimamanni, Fernando San Roman Del Rincon (1651). Josef tefldi vel framan af og var með hartnær unnið en þá fórnaði andstæðingurinn hrók fyrir hættulega sókn og var líklegast kominn með unnið þegar hann þráskákaði…og Josef slapp með skrekkinn í þetta skiptið!

Adam teflir upp fyrir sig, fær 2000 stiga mann í þriðju umferð en Josef fær 1700 stiga mann.

- Auglýsing -