Vignir Vatnar Stefánsson kláraði stórmeistaraflokinn sinn í Ceske Budjovice í Tékklandi með jafntefli og kom í mark sem öruggur sigurvegari. Stórmeistararnir Hannes Hlífar Stefánsson og Helgi Áss Grétarsson náðu sér ekki á strik A-grúppunni að þessu sinni.
Vignir hafði þegar tryggt sér sigur fyrir lokaumferðina og mætti stórmeistaranum Petr Neuman (2442) í lokaumferðinni. Vignir náði sér í eitthvað frumkvæði eftir byrjunina en máði ekki að nýta sér það og Neuman náði að setja upp varnarmúr og tryggja sér jafntefli.
Glæsilegur árangur hjá Vigni sem vann örugglega með 7,5 vinning af 9.
Vignir hækkar um tæp 8 elóstig fyrir frammistöðuna.
Hannes kúplaði sig út úr slöku móti með stuttu jafntefli
Helgi tapaði í lokaumferðinni. Helgi missti tökin í enska leiknum og kraftataflmennska andstæðings hans og rosaleg peð á kóngsvæng gerðu út um skákina
Mót sem Hannes og Helgi vilja gleyma, þeir geta og gera betur næst…það er þannig!