Lið Íslands er á toppnum á HM landsliða í skák, eftir frábæran sigur á Ítölum í gær. Mótið fer fram 2.-11. júlí í Kraká á Póllandi.
Í dag mæta Íslendingar sveit Kanada sem er sú 10. sterkasta á pappírnum.
Íslendingar eru á toppnum með 9 stig af 10 mögulegum. (veitt eru tvö stig fyrir sigur í viðureignum en eitt fyrir jafntefli). Kanada er í 2.-6. sæti með 8 stig ásamt Ítölum, Ísraelsmönnum, b-sveit Englendinga og Bandaríkjamönnum.
Jón L. Árnason hvílir í dag.

Íslenska sveitin á mótinu er sterk sem endranær. Liðið skipa í borðaröð:
- Helgi Ólafsson
- Jóhann Hjartarson
- Margeir Pétursson
- Jón L. Árnason
- Þröstur Þórhallsson
Íslenka liðið teflir í flokki 50+ þar sem tefldar verða 9 umferðir. Alls taka 32 sveitir þátt í 50+ flokknum og er Ísland (2439) númer þrjú í styrkleikaröð á eftir feykisterkri sveit Bandaríkjamanna (2480) og Evrópumeistara Englendinga (2469). Skammt á hæla Íslendinga kemur sveit Ítala (2431) sem er svipuð að stigum og sú íslenska og hefur oft reynst okkur erfið. Þessar fjórar sveitir eiga að vera í nokkrum sérflokki á þessu móti!
















