Við upphaf umferðarinnar gegn Könunum. Mynd: Mark Livshhitz

Lið Íslands er í öðru sæti  á HM landsliða í skák 50 ára og eldri, eftir 1-3 tap gegn Bandaríkjunum í gær.  Mótið fer fram 2.-11. júlí í Kraká á Póllandi.

Bandaríkjamenn eru efstir með 12 stig og eru í mjög vænlegri stöð þar sem þeir hafa teflt við allar sterkustu sveitirnar. Veitt eru tvö stig fyrir sigur en eitt fyrir jafntefli. Íslendingar og Ítalir hafa 11 stig. Íslendingar standa betur að vígi í baráttunni um silfrið. Þeir hafa 20 vinninga en Ítalir 18½ vinning en vinningar telja ef lið eru jöfn á stigum.

Áttunda og næstsíðasta umferð fer fram í dag. Þá tefla Íslendingar við lið Slóvakíu sem hafa sjöttu sterkustu sveit mótsins. Helgi Ólafsson hvílir í dag.

Bein útsending á LiChess

Íslenska sveitin á mótinu er sterk sem endranær. Liðið skipa í borðaröð stórmeistarnir:

  1. SM Helgi Ólafsson (2466)
  2. SM Jóhann Hjartarson (2472)
  3. SM Margeir Pétursson (2397)
  4. SM Jón L. Árnason (2421)
  5. SM Þröstur Þórhallsson (2385)

Íslenka liðið teflir í flokki 50+ þar sem tefldar verða 9 umferðir. Alls taka 32 sveitir þátt í 50+ flokknum og er Ísland (2439) númer þrjú í styrkleikaröð á eftir feykisterkri sveit Bandaríkjamanna (2480) og heims- og Evrópumeistara Englendinga (2469). Skammt á hæla Íslendinga kemur sveit Ítala (2431) sem er svipuð að stigum og sú íslenska. Þessar fjórar sveitir eiga að vera í nokkrum sérflokki á þessu móti!

- Auglýsing -