Það var greinilega mikið spennufall eftir tapið dýr gegn Bandaríkjamönnum í sjöundu umferðinni. Ljóst var að eitthvað mikið þyrfti til að Bandaríkjamenn myndu gefa eftir í lokaumferðunum en það var heldur ekki í kortunum að íslenska liðið myndi missa niður punkt gegn Slóvakíu. 2-2 jafntefli varð þó niðurstaðan og nú er íslenska liðið jafnt því enska í 3. sæti og bronsið mun ráðast á hvort liðið vinnur stærri sigur.

Íslenska sveitin var sterkari á pappírnum en Slóvakar sýnd veiði og allt það og N.B. voru Slóvakar með flesta borðavinninga fyrir umferðina en höfðu þó fengið léttara prógram en sveitirnar á toppnum. Helgi hvíldi aftur en teflir í lokaumferðinni.
Jóhann hafði svart gegn stórmeistaranum Martin Mrva og tefldu þeir spænska „pósaskák“. Sá slóvaski tefldi hreinlega bara feykilega vel og vann heilt yfir sannfærandi sigur. Lítið hægt að segja ef menn tefla skákirnar svona vel.
Margeir var sem betur fer fljótur að kvitta fyrir þetta á öðru borði. Margeir virtist nokkuð vel með á nótunum í nýmóðins afbrigði í Catalan og gjörsamlega slátraði sínum andstæðing.
Þröstur kom okkur í forystu 2-1 með nokkuð hreinum og öruggum sigri á fjórða borði.
Jón L. hefði þurft að halda jafntefli á þriðja borði til að við ynnum viðureignina. Andstæðingur hans tefldi hinsvegar traust gegn broddgeltinum og endataflið varð því miður of erfitt. Jón hafði hrók og biskup fyrir drottningu en svörtu reitir hans voru of veikir og hvítur komst í gegn.

2-2 jafntefli niðurstaðan sem setur aldeilis strik í reikninginn. Það var eiginlega aldrei í kortunum að Ísland myndi ekki enda á verðlaunapalli áður en 7. umferðin hófst.

Nú er staðan hinsvegar þannig að Bandaríkjamenn ættu að klára dæmið, Ítalir eru ólíklegir í hikt og því verða Íslendingar og Englendingar að keppa um það hvort sveitin fær fleiri vinninga í lokaumferðinni. England mætir Ísrael en Ísland fær mun sterkari sveit Bandaríkjanna-B.

Íslenska sveitin á mótinu er sterk sem endranær. Liðið skipa í borðaröð:
- Helgi Ólafsson
- Jóhann Hjartarson
- Margeir Pétursson
- Jón L. Árnason
- Þröstur Þórhallsson
Íslenka liðið teflir í flokki 50+ þar sem tefldar verða 9 umferðir. Alls taka 31 sveit þátt í 50+ flokknum og er Ísland (2439) númer þrjú í styrkleikaröð á eftir feykisterkri sveit Bandaríkjamanna (2480) og Evrópumeistara Englendinga (2469). Skammt á hæla Íslendinga kemur sveit Ítala (2431) sem er svipuð að stigum og sú íslenska og hefur oft reynst okkur erfið. Þessar fjórar sveitir eiga að vera í nokkrum sérflokki á þessu móti!














