Adam Omarsson vann sína skák í dag en Josef varð að lúta í dúk.

Josef mætti Spánverja, Fernando Estremera Fernandez (2119). Sá spænski breytti útaf venjulegu byrjunarvali sínu og kom Josef á óvart. Í miðtaflinu kom óvæntur leikur og Josef lenti í langri vörn en varðist vel og komst í hróksendatafl peði undir en náði ekki að halda því, löng og lærdómsrík skák!

Adam lagði heimamanninn Guillermo Quindos Cesteros (1652). Adam náði góðri stöðu úr byrjun sem hann þekkti vel og þjarmaði nokkuð auðveldlega að andstæðingi sínum og lagði hann að velli.

Adam hefur nú 3 vinninga af 6 en Josef 2,5 af 6.

- Auglýsing -