Íslenski landsliðsmaðurinn Hilmir Freyr Heimisson (2392) tekur nú þátt í sterkri lokaði GM-grúppu í Köge í Danmörku. Taflmennska hófst í dag með tvöfaldri umferð.
Í fyrri umferðinni mætti Hilmir hinum margreynda sænska stórmeistara Jonny Hector (2410). Úr varð skemmtileg og spennandi skák í anda Hilmis. Hilmir fórnaði peði í Benkö-bragði og fékk glimrandi spil og stóð betur á köflum. Hector náði að hanga á umframpeði en spil Hilmis átti að nægja í jafntefli en þá lék hann af sér með biskupsleik til c6 sem tapaði liði og svo skákinni.
Athugið að smá „dgt-villa“ er í skákinni sem gerist annað slagið þegar löngum leikjum er leikið ógætilega. 28. leikur svarts á að vera 28…Hxa2 og næstu leikir er forritið að reyna sjálft að „laga“ stöðuna sem kemst aftur i lag eftir 31…Dc8+ sem ætti að vera 28…Dc8+ án leiðréttinga.
Hilmir var ekki lengi að rétta úr kútnum enda tvöfaldur dagur eins og áður sagði. Hilmir gjörsamlega pakkaði danska FIDE meistaranum Jeppe Hald Falkesgaard saman í enska leiknum, blés til sóknar á h-línunnin og sigurinn aldrei í hættu…sjón er sögu ríkari!
Næstu tvo daga eru tvöfaldar umferðir en tempóið róast í síðustu þremur umferðunum þar sem verður tefld ein skák á dag.