Þeir bræður Adam og Josef Omarssynir hafa verið á fínni siglingu í undanförnum umferðum á risastóru opnu móti í Benasque á Spáni þar sem yfir 500 skákmenn taka þátt. Í níundu og næstsíðustu umferðinni komu 1,5 vinningur í hús af 2 mögulegum.
Adam hafði hvítt gegn Victor Juarros Ruiz (2083) sem hafði náð góðum úrslitum á þessu móti, t.d. jafntefli gegn Alan Pichot (2600). Adam hélt jafntefli í erfiðu hróksendatafli og hefur nú náð 4 vinningum í síðustu 5 umferðum!

Josef hafði svart gegn Oscar Saez Gabikagogeaskoa (1966) og náði að vinna í um 20 leikjum í Sveshnikov sem hann er orðinn ansi sleipur í!
Adam hefur 5,5 vinning af 9 og Josef 5 vinninga af 9.
Lokaumferðin, sú tíunda er á morgun!
- Auglýsing -
















