Íslandsmeistarinn Helgi Áss Grétarsson varð að sætta sig við tap í sjöttu umferð á opnu alþjóðlegu móti í Slóvakíu.
Nálgun Helga á skák dagsins gegn FIDE meistaranum Jernej Kozlovic (2300) virtist ganga nánast fullkomlega upp. Helgi hafði svart og tefldi Philidor og fékk að öllum líkindum upp nákvæmlega þann bardaga sem hann sá fyrir sér. Í miðtaflinu hafði Helgi undirtökin og lék mörgum skemmtilegum leikjum og fórnaði t.a.m. skiptamun ítrekað í miðtaflsflækunum.
Helgi gerði nánast allt rétt en þurfti að finna flottan leik hér…
Helgi lék 34…Rh3+ sem heldur góðum sénsum á svart en 34..Rg2!! gefum svörtum unnið tafl. Eftir 35.Bxd2 Dxd2 á hvítur engan góðan reit fyrir hrókinn, Re3 er á leiðinni en einnig eru flóknari afbrigði þar sem …Rf4 er lykilleikur. Báðir keppendur voru hér í miklu tímahraki.
Helgi fékk svo aftur dauðafæri í hinum klassíska 40. leik, síðasta leik fyrir loka tímamarka.
Helgi með lítinn tíma á klukkunni lék hinum mjög freistandi leik 40…Df2 sem hóta rmáti með peði! Því miður getur hvítur nú tekið á g3 og er kominn aftur inn í skákina eftir 41.Hxg3. Með 40…Hd4! hefði Helgi búið til óyfirstígandi vandamál fyrir hvítt. Ef biskupinn hreyfir sig er Df2 skyndilega unnið þar sem hrókurinn á e1 væri óvaldaður, bætt útgafa af 40. leik Helga!
Helgi átti í kjölfarið gangandi þráskák en hélt áfram að reyna að landa vinningnum og það kostaði því miður tap í þetta skiptið. Grátlegt tap!
Helgi hefur því 3,5 vinninga af 6 og taflmennskan heldur áfram á morgun þar sem Helgi mætir sjöunda FIDE-meistaranum í röð!















