Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson hefur hafið leik á vel sterku lokuðu alþjóðlegu móti sem fram fer í Kanada. Ber mótið heitið Maplewood Chess Club Invitational. Vignir er í hópi margra þekkta stórmeistara á þessu móti.
Fremstur í flokki er Jorden van Foreest, næststigahæsti skákmaður Hollendinga. Foreest hefur unnið sér það til frægðar að bera sigur úr býtum á hinum sögufræga Wijk an Zee skákmóti.
Ivan Saric er stigahæsti skákmaður Króata. Hann er gríðarlega sterkur skákmaður og hefur t.a.m. lagt Magnus Carlsen að velli í kappskák. Talandi um Magnus Carlsen, samlandi hans og fyrrverandi heimsmeistari unglinga Aryan Tari er meðal keppenda á mótinu.

Vignir er númer 6 í styrkleikaröðinni og því ærið verkefni framundan.
Í fyrstu umferðinni sem nú er í gangi hefur Vignir hvítt gegn Tom Kantans, lettneskum landsliðsmanni sem hann mætti lika á Canadian Open á dögunum. Þar endaði skákin með jafntefli en Vignir hafði þá svart.
Skákna er hægt að sjá í beinni á lichess.org
















