Ekki munaði miklu að við fengjum íslenskan sigurvegara á Czech Open í fyrra þegar Helgi Áss Grétarsson átti glimrandi mót og komst ansi nálægt því að sigra á mótinu. Í ár teflir Lenka Ptacnikova í A-flokki en synir hennar Josef og Adam Omarssynir tefla í B-flokki.
Í fyrstu umferð hafði Lenka svart gegn Hampus Sörensen (2402) alþjóðlegum meistara frá Svíþjóð. Lenka fékk full passífa stöðu eftir byrjunina og Svíinn hafði mikið rými sem hann réði yfir og enduðu stöðuyfirburðir hans með peðsvinningi og svarta staðan hrundi í kjölfarið.
Hampus hefði þó átt að gera betur í þessari stöðu en hann drap á b6, 43.Bxb6? sem er allt í lagi en það er til töluvert betri leikur sem við skiljum eftir sem æfingu fyrir lesandann. Hvítur á leik!
Taflmennska stendur nú yfir í 2. umferð í A-flokki en bræðurnir Adam og Josef eru nú að tefla i fyrstu umferð í B-flokki.
















