Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson fer glæsilega af stað á sterku lokuðu alþjóðlegu móti sem fram fer í Kanada. Ber mótið heitið Maplewood Chess Club Invitational. Tvöföld umferð fór fram á fyrsta degi mótsisn og mætti Vignir tveimur stórmeisturum.
Í fyrstu umferðinni hafði Vignir hvítt gegn Tom Kantans (2471), lettneskum landsliðsmanni sem hann mætti lika á Canadian Open á dögunum. Þar endaði skákin með jafntefli en Vignir hafði þá svart.
Í skákinni í dag hafði Vignir hvítt gegn sikileyjarvörn. Vignir fékk strax fína stöðu og virtist hafa betri stöðu alla skákina og hafði Vignir að lokum sannfærandi og sanngjarnan sigur. Sigurinn hefði þó getað verið auðveldari ef Vignir hefði nýtt sér dauðafæri í 20. leik.
Hér hefði verið hægt að klára dæmið með 20.Hc8! og svartur getur gefið.
Í seinni skákinni hafði Vignir svart gegn Aryan Tari (2637), fyrrverandi heimsmeistara unglinga og næstbesta skákmanni Norðmanna undanfarin ár. Vignir kom greinilega á óvart með 5…Bd7 í byrjuninni og Norðmaurinn eyddi mun meiri tíma. Fylgdu þeir lengi skák MVL og Carlsen frá 2019 sem Carlsen vann reyndar með svörtu. Afbrigðið er traust en svartur þarf líklegast aðeins að verjast gegn bestu taflmennsku.
Vignir tapaði á endanum peði en virtist alltaf haga nægjanlega virkni í stöðunni til að halda öllu í skefjum. Í endtaflinu var Vignir vandanum vaxinn og stýrði hróksendataflinu í öruggt jafntefli..
1,5 af 2 vinningum í hús á þessum fyrsta degi hjá Vigni gegn tveimur erlendum landsliðsmönnum! Vonandi gefur þetta Vignir góðan meðbyr.
Á morgun er einföld umferð og hefur Vignir þar hvítt gegn heimamanninum og alþjóðlega meistaranum Anthony Atanasov (2407)
- Í beinni á lichess.org
- Chess-results

















