Þrír Íslendingar taka nú þátt á Czech Open í Pardubice í Tékklandi. Í ár teflir Lenka Ptacnikova í A-flokki en synir hennar Josef og Adam Omarssynir tefla í B-flokki.

Eftir helgina hafði Lenka 1 af 3 í A-flokki en Josef og Adam höfðu báðir 2,5 af 3 í B-flokki.

Lenka vann sigur í 4. umferð gegn Witold Lechowski (1969) frá Póllandi en lá svo í 5. umferðinni gegn öðrum Pólverja, CM Kacper Ugored (2250). Lenka hefur því 2 vinninga eftir 5 umferðir.

Í B-flokknum er Adam traustur og hefur fylgt góðri byrjun eftir með tveimur jafntefli í 4. umferð í gær og 5. umferð í dag. Michael Dome (1932) var andstæðingurinn í 4. umferð og Matthias Jakob (1983) í 5. umferðinni.

Josef tapaði sinni fyrstu skák í gær í 4. umferðinni gegn Lukas Zelba (1959) en vann í dag í 5. umferð gegn Ali Hassan Rayan Mohammad  (1573).

Adam og Josef hafa því báðir 3,5 vinning af 5 í B-flokki.

Framundan er sjötta umferð í báðum flokkum þar sem baráttan heldur áfram. Bræðurnir tefla aðeins upp fyrir sig í B-flokki en Lenka fær andstæðing frá Furstadæmunum um 100 elóstigum lægri en hún.

- Auglýsing -