Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson vann mjög auðveldan sigur í 6. umferð á Maplewood Chess Club Invitational, sterku lokuðu móti í Kanada. Vignir náði andstæðingi sínum í auðvelt byrjunartrikk og vann á u.þ.b. klukkutíma.

Andstæðingur dagsins var stigalægsti keppandi mótsins og flokksins, FIDE-meistarinn Renzo Gutierres (2198). Vignir hafði hvítt og upp koma Catalan-byrjun. Eins og venjulega, hefði Renzo betur rennt í gegnum taktísk mynstur greinarhöfundar á YouTube en trikkið sem Vignir notar er útskýrt í vídeóinu að neðan og nákvæmlega staðan sem kom upp hjá Vigni er á 9 mínútu í vídeóinu!

Vignir semsagt vann peðið nákvæmlega eins og í vídeóinu og í kjölfarið liðu ekki margir leikir þar til Vignir gjörsamlega valtaði yfir andstæðing sinn á kóngsvængnum. Stutt skák og kærkominn slökun í heita pottinum eftir þennan sigur!

Vignir hefur því 4,5 vinning af 6 mögulegum og er nú einn í 3. sæti á eftir Jorden van Foreest sem hefur 5,5 og Aryan Tari sem hefur 5 vinninga. Andstæðingur morgundagsins er Shawn Rodrigue-Lemieux (2499) sem tapaði gegn Aryan Tari í dag en hann var jafn Vigni að vinningum fyrir umferðina í dag.

Skákin gegn Shawn er aðeins annað af fyrri verkefnum morgundagsins en í seinni umferðinni á morgun hefur Vignir svo hvítt gegn Jorden van Foreest og loks svart í lokaumferðinni gegn Ivan Saric á fimmtudaginn.

- Auglýsing -