Iðunn Helgadóttir sem nýverið var valinn í Ólympíulið Íslands í kvennaflokki lauk í dag leik í B-flokki á opnu móti í Zadar í Króatíu. Helgi Pétur Gunnarsson faðir hennar tefldi líka í flokknum. Þau unnu bæði sigur í lokaumferðinni og enduðu bæði með 5 vinninga af 9 mögulegum.
Iðunn byrjaði mótið rólega en skilaði 3 vinningum af 4 í hús í lokaumferðunum.

Eins og sjá má eru flestir andstæðingar Iðunnar með hærri króatísk stig en alþjóðleg og að öllum líkindum „underrated“ andstæðingar eins og flestir eru að lenda í þegar farið er á þessu alþjóðlegu mót.
Iðunn endaði í 42. sæti í B-flokknum og tapaði „montkeppninni“ við pabba sinn sem endaði í 37. sæti á stigum. Iðunn lækkar á elóstigum á mótinu en mjög mikilvægt er að ná góðri æfingu fyrir Ólympíuskákmótið í september og sérstaklega EM ungmenna sem alltaf eru þung mót og er framundan núna í ágúst!















